Morgunblaðið - 20.12.2000, Side 55

Morgunblaðið - 20.12.2000, Side 55
MOKGUNBLAÐIÐ T UMRÆÐAN Reykjavíkur- flugvöll eða Reykjavík? FÁ MÁL hafa bakað borgarstjórn Reykja- víkur annan eins vanda og vanhugsuð sam- þykkt borgarráðs vorið 1999 á nýju deiliskipu- lagi Reykjavíkurflug- vallar sem leyfði ný- byggingu hans á sínum gamla stað. Fáar sam- þykktir munu hafa jafn víðtækar og alvarlegar afleiðingar fyrir borg- arbúa á nýrri öld verði ekki snúið við á þeirri óheillabraut sem ný- bygging vallarins er fyrir byggðina á höfuð- borgarsvæðinu. Borg- arbúar reyndust ekkert skjól eiga í Skipulagsstofnun ríkisins og enn síð- ur í umhverfisráðuneytinu þegar þess var krafist af Samtökum um betri byggð, að byggingarleyfi yrði ekki gefið út nema að undangengnu umhverfismati samkv. lögum frá 1993. Byggingarleyfi umhverfisráð- heira var síðan kært til umboðs- Flugvallarmái Borgarstjórn Reykja- víkur myndi vaxa í áliti með því að viðurkenna skipulagsmistök sín, segir Steinunn Jóhann- esdóttir, og taka upp vörn fyrir höfuðborgina. manns Alþingis, sem hefur ekki enn skilað áliti, þegar þetta er skrifað Nýbygging vallarins er aftur á móti um það bil hálfnuð. Að fullu er lokið við austur-vesturbrautina og stór landfylling er komin út í Skerjafjörð sem sökkull undir hið stækkaða ör- yggissvæði norður-suðurbrautar. Sjúkraflug útheimtir ekki alþjóðaflugvöll Þetta umfangsmikla, nýja örygg- issvæði er ekki byggt vegna sjúkra- flugsins sem nýuppvaktir Hollvinir Reykjavíkurflugvallar tína til sem eina helstu röksemd fyrir áfram- haldandi veru vallarins í miðborg Reykjavíkur og fá til þess fulltingi landlæknis. Landfyllingin er til kom- in svo vélar á borð við Boeing-þotur Flugleiða geti betur athafnað sig í miðborginni. Því þrátt fyrir að borg- arstjórn hafi kynnt það sem sína stefnu að einskorða eigi flug um Reykjavíkurflugvöll við hið mikil- væga innanlandsflug eru flugrekstr- araðilar og Hollvinir vallarins með allt annað og meira í huga. Menn eru ekki að byggja nýjan alþjóðavöll á „besta stað“ í bænum til þess að láta hann liggja illa nýttan eða ónotaðan. Og engir vita betur en innstu koppar í flugbúrinu að það er lítil framtíð í innanlandsflugi í andarslitunum. Vaxtarbroddinn sjá þeir í millilanda- flugi, Grænlands- og Færeyjaflugi, póstflugi, ráðstefnu- og fundaflugi, ferjuflugi, vaxandi einkaflugi auð- kýfinga og síðast en ekki síst má bú- ast við harðri samkeppni við Kefla- víkurflugvöll um leiguflug af ýmsu tagi Reykjavík eða Reykjavíkurflug- völl? Staðarval flugvallar á höfuð- borgarsvæðinu er miklu stærra mál en svo að stjórnmálamenn geti leyft sér að skoða það eingöngu út frá hagsmunum flugsins og gjaldfallinn- ar byggðastefnu. Reykjavíkurflug- völlur er stærsta skipulagsmál höf- uðborgarsvæðisins og lega hans hefur áhrif á allt daglegt líf borg- aranna. Hin mikla dreifing byggðar- innar á rætur að rekja til legu vall- arins og gerir rekstur borgarinnar óhemju dýran og óhagkvæman jafnt fyrir einstaklinga og fyrirtæki. í svo dreifðri byggð verða al- menningssamgöngur ónothæfar og einkabíll- inn því í raun eini val- kostur íbúanna. Um- ferðarþunginn í borginni er margfalt meiri en hann þyrfti að vera ef byggðin væri þéttari og þar með mengunin og mannslíf- in sem fara forgörðum af völdum umferðar- slysa allt of mörg. Tug- þúsundir Reykvíkinga og Kópavogs- búa eru daglega á hættusvæði undir aðflugslínum úr mörgum áttum. í raun stendur valið á milli Reykjavík- urflugvallar og framtíðar hjarta Reyjavíkur. Uppreisn á Reykjanesbraut Ríkisstjórnin hefur tekið nýbygg- ingu Reykjavíkurflugvallar fram yfir tvöföldun Reykjanesbrautar og lík- lega er ein ástæðan sú að ekki mátti gera samgöngur við Keflavík svo greiðar að hljómgrunnur fengist fyr- ir því að flytja miðstöð innanlands- flugsins þangað. Nú virðist mælir sorgar og reiði vera að fyllast á Suð- urnesjum vegna allra þeirra fórnar- lamba dauða og örkumla sem Reykjanesbrautin hefur tekið í toll. Hópur manna mótmælti þessari skattheimtu í mannslífum með því að loka brautinni í nokkrar klukku- stundir með vegartálmum 11. des- ember sl. Þingmenn Reykjaness tóku samstundis viðbragð og sam- gönguráðherra virtist einnig fá hjartslátt. Hann lofaði bót og betrun. Og nú brá svo við að það vafðist hvorki fyrir ráðherranum né þing- mönnum ríkisstjórnarinnar að tvö- földum Reykjanesbrautar yrði að sæta umhverfismati. Hver er mun- urinn á Reykjanesbraut og Reykja- víkurflugvelli frammi fyrir lögunum? Ég óska svars lögvitringa. Rökræður eða skærur Oft má efast um að friðsöm mót- mæli, greinaskrif og rökræður við stjórnmálamenn um grundvallarmál eins og borgarskipulag og samgöng- ur hafi nokkuð að segja. Aftur á móti er augljóst að reiði sem tekur á sig form uppreisnar kallar á skjót við- brögð. Og ef til vill eru stjórnmála- menn að bíða eftir því að hópur borg- arbúa setji upp svartar skæruliða- hettur og stöðvi flugumferð um Reykjavíkurflugvöll með valdi. Það er kannski það sem þarf til þess að þeir átti sig á alvöru málsins. Stjórn- málamenn héldu að hægt væri að byggja nýjan flugvöll í hjarta Reykj- víkur með því að lauma honum í gegnum borgarkerfið eins og minni háttar breytingu á deiliskipulagi, Model 6228DWE 14.4 v Rafhlöðuborvél Aukarafhlaða / taska JÓLATILBOÐSVERÐ 15.900,- Sni ÞÓR HF Royfcjav*; Armutoll - &mí 698-1600 H Akurwyví: LómbMm - SM 461-1070 Steinunn Jóhannesdóttir þegar lög kveða á um umhversmat. Að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í miðri mannabyggð er svo stór og af- drifarík ákvörðun að hana má ekki taka án þess að hafa rannsakað málið til hlítar, kynnt það og rætt í þaula við borgarana og beðið um samþykki þeirra. Valdníðsluaðferðin leiðir ekki til annars en ófriðar og uppreisnar. Samgönguráðherra ráðið heilt Og ef ég má ráða samgönguráð- herra heilt í vandmeðfömu embætti legg ég til að ekki verðið haldið lengra í nýbyggingu Reykjavíkur- flugvallar. Ég hvet ráðherrann til að láta hina nýju og fullkomnu austur- vesturbraut duga fyrir innanlands- flugið þar til Ijóst er hvort það lifir yfirleitt af næstu ár. Ég legg til að þeir peningar sem þá sparast fari í að undirbúa tvöföldun Reykjanes- brautar. Það myndi afla ráðherran- um vinsælda og spara mannslíf. Þeg- ar Ijóst er hversu mörgum flugleiðum innanlands verður haldið við er hægt að meta þörfina fyrir nýjan innanlandsvöll á höfuðborgar- svæðinu þar sem von er til að meiri sátt fáist um staðarvalið. Hvorki þyrluflug með sjúka og slasaða né innanlandsflug á þrjá til fjóra áfangastaði á landsbyggðinni út- heimtir nýjan alþjóðlegan flugvöll í miðborg Reykjavíkur. Það skilja all- ir. Borgarstjórn Reykjvíkur myndi vaxa í áliti með því að viðurkenna skipulagsmistök sín og taka upp vörn fyrir höfuðborgina. Reykjavík þarf á hollvinum að halda. Höfundur er rithöfundur. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 Bókerbamagaman Bókatíðindi 2000 kominút Félag íslenskra bókaútgefenda Antik er fjárfesting Antik er lífistíll Opið mán.-fös. 12-18 lau. 11-22 og sun. 10-12 Verslunin hefur opnaö á ný. Nú í Síðumúla 34 Veriö velkomin Opnunartilboð Borghildur Maack Viktoria Antik • Síðumúla 34 • Sími 568 6076 | Fasteignir á Netinu 0mbl.is ti'r' Td| 2001 98.000,- Stgr. Teg 299/6 17.900,- Stgr. Teg 155 24.900,- Stgr. Teg 111 59.900,-Stgr. Teg44 9.500,-stgr. Æ fullt af Iwgögnum t*: reg 2S7 8.600.- rtgr. 4m Teg 395 18.900,- stgr. Rococo rtOlar morglr lltir verð fri 22.900,- stgr. Teg 544 25.900,-Stgr. Teg 45 19.500,-stgr. mnqramiTi Teg 2064 48.900,-Stgr. HUSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKCIRVEQI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100 Teg 507 51.900,-Stgr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.