Morgunblaðið - 20.12.2000, Síða 55
MOKGUNBLAÐIÐ
T
UMRÆÐAN
Reykjavíkur-
flugvöll eða
Reykjavík?
FÁ MÁL hafa bakað
borgarstjórn Reykja-
víkur annan eins vanda
og vanhugsuð sam-
þykkt borgarráðs vorið
1999 á nýju deiliskipu-
lagi Reykjavíkurflug-
vallar sem leyfði ný-
byggingu hans á sínum
gamla stað. Fáar sam-
þykktir munu hafa jafn
víðtækar og alvarlegar
afleiðingar fyrir borg-
arbúa á nýrri öld verði
ekki snúið við á þeirri
óheillabraut sem ný-
bygging vallarins er
fyrir byggðina á höfuð-
borgarsvæðinu. Borg-
arbúar reyndust ekkert skjól eiga í
Skipulagsstofnun ríkisins og enn síð-
ur í umhverfisráðuneytinu þegar
þess var krafist af Samtökum um
betri byggð, að byggingarleyfi yrði
ekki gefið út nema að undangengnu
umhverfismati samkv. lögum frá
1993. Byggingarleyfi umhverfisráð-
heira var síðan kært til umboðs-
Flugvallarmái
Borgarstjórn Reykja-
víkur myndi vaxa í áliti
með því að viðurkenna
skipulagsmistök sín,
segir Steinunn Jóhann-
esdóttir, og taka upp
vörn fyrir höfuðborgina.
manns Alþingis, sem hefur ekki enn
skilað áliti, þegar þetta er skrifað
Nýbygging vallarins er aftur á móti
um það bil hálfnuð. Að fullu er lokið
við austur-vesturbrautina og stór
landfylling er komin út í Skerjafjörð
sem sökkull undir hið stækkaða ör-
yggissvæði norður-suðurbrautar.
Sjúkraflug útheimtir
ekki alþjóðaflugvöll
Þetta umfangsmikla, nýja örygg-
issvæði er ekki byggt vegna sjúkra-
flugsins sem nýuppvaktir Hollvinir
Reykjavíkurflugvallar tína til sem
eina helstu röksemd fyrir áfram-
haldandi veru vallarins í miðborg
Reykjavíkur og fá til þess fulltingi
landlæknis. Landfyllingin er til kom-
in svo vélar á borð við Boeing-þotur
Flugleiða geti betur athafnað sig í
miðborginni. Því þrátt fyrir að borg-
arstjórn hafi kynnt það sem sína
stefnu að einskorða eigi flug um
Reykjavíkurflugvöll við hið mikil-
væga innanlandsflug eru flugrekstr-
araðilar og Hollvinir vallarins með
allt annað og meira í huga. Menn eru
ekki að byggja nýjan alþjóðavöll á
„besta stað“ í bænum til þess að láta
hann liggja illa nýttan eða ónotaðan.
Og engir vita betur en innstu koppar
í flugbúrinu að það er lítil framtíð í
innanlandsflugi í andarslitunum.
Vaxtarbroddinn sjá þeir í millilanda-
flugi, Grænlands- og Færeyjaflugi,
póstflugi, ráðstefnu- og fundaflugi,
ferjuflugi, vaxandi einkaflugi auð-
kýfinga og síðast en ekki síst má bú-
ast við harðri samkeppni við Kefla-
víkurflugvöll um leiguflug af ýmsu
tagi Reykjavík eða Reykjavíkurflug-
völl? Staðarval flugvallar á höfuð-
borgarsvæðinu er miklu stærra mál
en svo að stjórnmálamenn geti leyft
sér að skoða það eingöngu út frá
hagsmunum flugsins og gjaldfallinn-
ar byggðastefnu. Reykjavíkurflug-
völlur er stærsta skipulagsmál höf-
uðborgarsvæðisins og lega hans
hefur áhrif á allt daglegt líf borg-
aranna. Hin mikla dreifing byggðar-
innar á rætur að rekja til legu vall-
arins og gerir rekstur
borgarinnar óhemju
dýran og óhagkvæman
jafnt fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. í svo
dreifðri byggð verða al-
menningssamgöngur
ónothæfar og einkabíll-
inn því í raun eini val-
kostur íbúanna. Um-
ferðarþunginn í
borginni er margfalt
meiri en hann þyrfti að
vera ef byggðin væri
þéttari og þar með
mengunin og mannslíf-
in sem fara forgörðum
af völdum umferðar-
slysa allt of mörg. Tug-
þúsundir Reykvíkinga og Kópavogs-
búa eru daglega á hættusvæði undir
aðflugslínum úr mörgum áttum. í
raun stendur valið á milli Reykjavík-
urflugvallar og framtíðar hjarta
Reyjavíkur.
Uppreisn á Reykjanesbraut
Ríkisstjórnin hefur tekið nýbygg-
ingu Reykjavíkurflugvallar fram yfir
tvöföldun Reykjanesbrautar og lík-
lega er ein ástæðan sú að ekki mátti
gera samgöngur við Keflavík svo
greiðar að hljómgrunnur fengist fyr-
ir því að flytja miðstöð innanlands-
flugsins þangað. Nú virðist mælir
sorgar og reiði vera að fyllast á Suð-
urnesjum vegna allra þeirra fórnar-
lamba dauða og örkumla sem
Reykjanesbrautin hefur tekið í toll.
Hópur manna mótmælti þessari
skattheimtu í mannslífum með því að
loka brautinni í nokkrar klukku-
stundir með vegartálmum 11. des-
ember sl. Þingmenn Reykjaness
tóku samstundis viðbragð og sam-
gönguráðherra virtist einnig fá
hjartslátt. Hann lofaði bót og betrun.
Og nú brá svo við að það vafðist
hvorki fyrir ráðherranum né þing-
mönnum ríkisstjórnarinnar að tvö-
földum Reykjanesbrautar yrði að
sæta umhverfismati. Hver er mun-
urinn á Reykjanesbraut og Reykja-
víkurflugvelli frammi fyrir lögunum?
Ég óska svars lögvitringa.
Rökræður eða skærur
Oft má efast um að friðsöm mót-
mæli, greinaskrif og rökræður við
stjórnmálamenn um grundvallarmál
eins og borgarskipulag og samgöng-
ur hafi nokkuð að segja. Aftur á móti
er augljóst að reiði sem tekur á sig
form uppreisnar kallar á skjót við-
brögð. Og ef til vill eru stjórnmála-
menn að bíða eftir því að hópur borg-
arbúa setji upp svartar skæruliða-
hettur og stöðvi flugumferð um
Reykjavíkurflugvöll með valdi. Það
er kannski það sem þarf til þess að
þeir átti sig á alvöru málsins. Stjórn-
málamenn héldu að hægt væri að
byggja nýjan flugvöll í hjarta Reykj-
víkur með því að lauma honum í
gegnum borgarkerfið eins og minni
háttar breytingu á deiliskipulagi,
Model 6228DWE
14.4 v Rafhlöðuborvél Aukarafhlaða / taska
JÓLATILBOÐSVERÐ
15.900,-
Sni ÞÓR HF Royfcjav*; Armutoll - &mí 698-1600
H Akurwyví: LómbMm - SM 461-1070
Steinunn
Jóhannesdóttir
þegar lög kveða á um umhversmat.
Að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í
miðri mannabyggð er svo stór og af-
drifarík ákvörðun að hana má ekki
taka án þess að hafa rannsakað málið
til hlítar, kynnt það og rætt í þaula
við borgarana og beðið um samþykki
þeirra. Valdníðsluaðferðin leiðir ekki
til annars en ófriðar og uppreisnar.
Samgönguráðherra
ráðið heilt
Og ef ég má ráða samgönguráð-
herra heilt í vandmeðfömu embætti
legg ég til að ekki verðið haldið
lengra í nýbyggingu Reykjavíkur-
flugvallar. Ég hvet ráðherrann til að
láta hina nýju og fullkomnu austur-
vesturbraut duga fyrir innanlands-
flugið þar til Ijóst er hvort það lifir
yfirleitt af næstu ár. Ég legg til að
þeir peningar sem þá sparast fari í
að undirbúa tvöföldun Reykjanes-
brautar. Það myndi afla ráðherran-
um vinsælda og spara mannslíf. Þeg-
ar Ijóst er hversu mörgum
flugleiðum innanlands verður haldið
við er hægt að meta þörfina fyrir
nýjan innanlandsvöll á höfuðborgar-
svæðinu þar sem von er til að meiri
sátt fáist um staðarvalið. Hvorki
þyrluflug með sjúka og slasaða né
innanlandsflug á þrjá til fjóra
áfangastaði á landsbyggðinni út-
heimtir nýjan alþjóðlegan flugvöll í
miðborg Reykjavíkur. Það skilja all-
ir. Borgarstjórn Reykjvíkur myndi
vaxa í áliti með því að viðurkenna
skipulagsmistök sín og taka upp
vörn fyrir höfuðborgina. Reykjavík
þarf á hollvinum að halda.
Höfundur er rithöfundur.
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
Bókerbamagaman
Bókatíðindi 2000
kominút
Félag íslenskra
bókaútgefenda
Antik er fjárfesting Antik er lífistíll Opið mán.-fös. 12-18 lau. 11-22 og sun. 10-12 Verslunin hefur opnaö á ný. Nú í Síðumúla 34 Veriö velkomin Opnunartilboð Borghildur Maack
Viktoria Antik • Síðumúla 34 • Sími 568 6076
| Fasteignir á Netinu 0mbl.is
ti'r'
Td| 2001 98.000,- Stgr.
Teg 299/6 17.900,- Stgr. Teg 155 24.900,- Stgr.
Teg 111 59.900,-Stgr.
Teg44 9.500,-stgr.
Æ fullt af Iwgögnum
t*:
reg 2S7 8.600.- rtgr.
4m
Teg 395 18.900,- stgr.
Rococo rtOlar morglr lltir
verð fri 22.900,- stgr.
Teg 544 25.900,-Stgr.
Teg 45 19.500,-stgr.
mnqramiTi
Teg 2064 48.900,-Stgr.
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKCIRVEQI 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100
Teg 507 51.900,-Stgr.