Morgunblaðið - 20.12.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000
Enn um
flugvöllinn
ÉG ÞAKKA tilskrif
frá August Hakanssyni
og lít svo á, að allar upp-
lýsingar sem þar koma
fram séu réttar. Auðvit-
að veit kafteinn hvað
fari sínu og farmi er
fyrir bestu. Mér voru
gefnar þessar upplýs-
ingar um stærð vélar-
innar (737) úti á velli, en
eins og oft er eru munn-
legar upplýsingar,
gefnar af starfsmönn-
um, stundum óná-
kvæmar og bið ég vel-
virðingar á því.
August segir í til-
skrifi sínu, að samkvæmt því sem
áhafnir stórra millilandavéla fái að
vita sé óhætt að lenda vélum þeirra á
braut 02/20 með hámarks lendingar-
þyngd (B757). Aftur kemur þarna til
einhver misskilningur af minni hálfu,
þar sem ein aðalástæða nýbyggingar
flugvallar í Vatnsmýri var einmitt, að
sögn flugmálayfirvalda, hversu und-
Flug
Ég er þeirrar skoðunar,
segir Bjarni Kjart-
ansson, að blómlegt vís-
indalíf verði haldreipi
byggðar hérlendis í
framtíðinni.
irlag brauta var veikt, þannig að
öngvan veginn var talið nægilegt að
slétta eingöngu yfirborð brauta. Þótt
sú framkvæmd hefði verið mun ódýr-
ari og samkvæmt handbókum Aug-
usts um leyfilega lendingarþyngd,
fullnægjandi til einhverra ára. Hugs-
anlega er hér um einhverja óná-
kvæmni í upplýsingum til almennings
að ræða, en ekki ætla ég þeim að
þama sé eitthvert „samsæri" á ferð-
inni. Þótt aðrar upplýsingar séu í
handbókum flugáhafna um höggþol
brautar 02/20 að því er kemur fram í
grein Augusts „Samsæriskenning-
ar“.
Hvað varðar not Reykjavíkui'vallar
sem varavallar fyrir millilandaflug til
einhverrar framtíðar mun unga fólk-
ið, sem mun taka við stjórn landsmála
á næstu áram, véla. Ráðamenn fram-
tíðarinnar láta ryðja
þessum velli í burtu og
nota landsvæðið undir
eitthvað skynsamlegra
svo sem þekkingarþorp,
öllum landsmönnum til
heilla. Því miður eru við
völd í samgönguráðu-
neytinu menn sem ekk-
ert sjá og ekkert skilja
um vaxtarmöguleika og
framtíðarhagsmuni
Reykvíkinga og lands-
manna allra. Þessir
spekingar láta sér jafn-
vel detta í hug, að
byggja rándýrar bygg-
ingarvið Hlíðafót, undir
umferðarmiðstöð og einnig flugstöðv-
arbyggingu. Bai-a að slíkar bygging-
ar verði ekki tákn um skammsýni
þeirra um langa framtíð.
Hvað öryggisþáttinn um sjúkra-
flug hefur áður komið fram, að ekki
er brýn nauðsyn á braut 02/20 til
þeirra nota og ekki sjálfgefið, að nýtt
sjúkrahús með bráðamóttöku verði
reist í nágrenni Vatnsmýrar, heldur
er jafn líklegt, að það rísi í nálægð við
Vífilsstaði. Þá væri jafnvel fljót-
famari spottinn til Keflavíkur eða ef
flugvöllur væri í hrauninu við hliðina.
Því hafa menn sett fram tillögu um
eina og hálfa braut, eða vestur/austur
brautina og þann stubb sem skagar
nú þegar út í Skerjafjörðinn, sem bið-
leik, þar til 2016 þegar menn sjá bet-
ur hvert stefnir með innanlandsflug.
Flugmálayfirvöld lögðu afar mikla
áherslu á að nauðsynlegt væri að við
eignuðumst varaflugvöll íyrir Kefla-
víkurvöllinn - á öðru veðursvæði! Eg-
ilsstaðavöllurinn var sérstaklega tek-
in sem kjörinn í það verkefni. Ekki
veit ég af hverju Glasgow var skráður
varavöllur en ekki Egilsstaðfr. Þar á
hljóta að vera góðar skýringar, ekki
vænti ég, að menn hafi heykst á lagn-
ingu varavallar þar eystra. Mig rekur
minni til að fjái-munir hafi verið
nokkrir látnfr í völlinn hér í eina tíð og
vonandi hefur það nýst vel og vara-
völlur því staðreynd á Egilsstöðum.
Um veðurfræðilega þætti sem
hamlað geta flugi til Keflavíkur ætla
ég mér ekki þá dul að hafa nema tak-
markað vit á, en eitt er ljóst. Hvergi
eru betri aðflugstæki og búnaður íyr-
ir blindflugslendingar en á Keflavík-
urvelli og það þarf að vera Stóri
stormur til að okkar snjöllu flugmenn
geti ekki lent þai- af miklu öryggi. Ég
hef verið um borð í vél Flugleiða þeg-
Bjarni Kjartansson
ar rokið og slagveðrið var mikið, jafn-
vel á mælikvarða okkai’ landans, sem
erum öllu vanir í þeim efnum. Því var
undrun mín mikil, þegar fjölmiðlar
skýrðu frá því, að millilandavél hefði
lent á Reykjavíkurvelli vegna slæms
veðurs í Keflavík. Veðrið var bara
ágætt hér og bakkar ekki stórir til
hafsins.
Um steinsteypumagn og malbiks-
flatamál ætla ég ekki að karpa. Hitt
er annað, sitt er hvort svæðið sé notað
undir tiltölulega fáar lendingar eða
nýtt undir háskóla og skólatengda
starfsemi og byggð í tengslum við
slíkt. Ég er þeirrar skoðunar að
blómlegt vísindalíf verði haldreipi
byggðar hérlendis í framtíðinni, en ef
menn vilja endilega leggja það svæði,
sem best er til þeirra hluta, undfr
flugvöll er ekkert við því að gera. Ég
bara vona að þeir viti hvað þeir eru að
gera, blessaðir mennimir. Miðbærinn
mun þá um fyrirséða framtíð verða
„rautt hverfi“ og enn mun fækka
verslunum og íbúum þar. Þá rekur til
þess, að ekki verður lengur ánægju-
legt að taka á móti gestum (ferða-
mönnum) því umhverfi þeirrar opin-
beru starfsemi, sem í miðbænum er
að finna, verður enn sóðalegra en nú
þegar er orðið.
Þannig kæri August Hakansson, ef
þú vilt endilega kalla mig einhvem
hollvin ætla ég að biðja þig að nefna
mig hollvin hámenningar í miðbæ
Reykjavíkur. Því í henni er framtíð
bama og barnabarna minna fólgin, að
égvona.
Höfundur er verkefnisstjóri.
Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín
í jólaumferðinni.
Bflastæðasjóður
9 litir fáanlegir
KSM 90
KitchenAid KSM 90 Ultra Power hrærivél (hvít), hakkavél
og smákökumót á hreint frábæru tilboðsverði. •*
35.365,%
KÍtchenAÍd - Kóróna eldhússins!
• 60 blaðsíðna leiðbeininga- og uppskriftabók á íslensku fylgir.
• Fjöldi aukahluta fáanlegir, svo sem: Pastagerðar-
tæki, grænmetiskvarnir, hveitibrautir, dósaopnarar, kornmyllur,
ávaxtapressur og fl.
• Aðrar gerðir KitchenAid kosta frá kr. 30.875 # "stgr.
5 REYKJAVlK 0G KÁGRENNI: Ratóru, Ántiúia 5. BræðurrW Omsscrt, Ligmúla 5. Hemistíki, Sítúni. Hagkaup, Kmgúini, Skeifunni og Smáramm.Píaft Grensásvegs 13. Húsasmiðjan. ReykjaA.
■ Rafbúðn,AtfaskeA31,Hatnarfvði. VESTURLAND:RafþjónustaSqurdórs.Akranesi.SkagavecAkranesi.KtBorgfrðinga.Borgamesi.Glitnr.BorgamestBtómsJunHkHefcssandi. Versl.Hama.
g Gnndarfrði. Versl. Skparl, Styttshókni. Vetsl. I Stelánssonat BuðardaL VESTFIRÐIR: r.í Kroksfyarðar; Krtb^rðamesi. Skandi hl Táknafirði Pokahomið, láknafirði Versl. Gumars SguðssonaL
| Þngeyn. laufið, Bokngarvi. Húsgagnatofoð, kafrðt Stratmur hí Isafrðr Kl Stemgrimsfyarðar; Hólmav*. NORÐURLAND: Ct Hrutfrðnga, Botðeya tt V-Hunuetrunga, Hvammstanga. Kt Húnvmnga.
BlönAiósr. Skagfrðngabúð, Sauðártróki. Húsasmiðyan. lónsbatta, Akueyn og úvto Húsavi. Ljósgafim, Akureyn AUSTURLAN0: tt Vopnfrðinga, VopnafrðL tt Héraðstáa, Seyðtírði. tí Héraðstáa,
Egdsstóðum RafaJda. Neskaupstað Kt Heraðsbua. Reyðarfrð. Kl fáskruösfyarðar. Kt A SkaWeHnga, Djupavogi. Kt A-SkaftHnga, Hófn SUÐURLAN0: KÁ veisim un altt Suðirland Versl MosW
l Hefc. Bnmnes Vestmannaeyym. Húsasmiðjan. Sefessi. Anrirknn. Sefcssi SUÐURNES: Raftorg,Grndavi. Húsasmiðjaa Keflavi.Samkaup, Keflavk. StapaH Kefiavi. Fritofran. Keflaviuflugvet
mmm KitchenAid einkaumboð á íslandi
f:f-
Einar Farestveit &Co.hf
Borgartúni 28 • S: 562 2901 & 562 2900 • www.ef.is-