Morgunblaðið - 20.12.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 61
Opið bréf til
samgönguráðherra
HEFUR hið opin-
bera viðurkennt
félagafrelsi á íslandi?
Kannski í orði en ekki í
verki. Gott dæmi um
félagafrelsi er leigu-
bílastéttin hér á landi,
en hér starfa þrjú félög
á höfuðborgarsvæðinu,
sem hafa fengið viður-
kenningu og starfsleyfi
samgönguráðuneytis.
Maður hefði haldið að
allar dyr stæðu opnar
við að fá starfsleyfi og
viðurkenningu sam-
gönguráðuneytis en sú
er ekki raunin. Ráðu-
neytið byrjaði að búa til vandamál á
milli þeirra þriggja félaga sem
starfandi eru á höfuðborgarsvæð-
inu, Átaks, Frama og Andvara.
Vandamálið byrjaði með því að ráð-
herra skipaði í umsjónarnefnd um
leigubíla og þar eiga öll félögin rétt
á setu samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga
nr. 61/1995, sem verður ekki skilin á
annan veg en að séu starfandi fleiri
en eitt félag leigubíla á sama svæði
skuli þeir sameiginlega skipa full-
trúa í umsjónarnefnd eða hvert
félag fyrir sig, samkvæmt lögunum.
Félögin náðu ekki sátt um neinn
mann, þá tók ráðuneytið af skarið
og útnefndi fulltrúa í umsjónar-
nefnd úr einu félagi, Frama, og með
því var ráðherra að fara gegn lögum
og reglum um leigubíla.
Álit Samkeppnisstofnunar átti að
skapa samkeppni á milli félaganna,
en til þess þurfti að breyta lögum
hvað varðar sam-
keppnislega mismunun
í reglum um leigubif-
reiðar. Ekki er búið að
breyta þessu enn, þó
svo að það séu liðin tvö
ár. Það er búið að
kæra þetta álit til Sam-
keppnisstofnunar en
beðið er eftir úrskurði
hennar. Þetta er and-
stætt ákvæðum jafn-
réttisreglu íslenskra
stjórnskipunarlaga, að
mismuna félögum með
þeim hætti sem ráð-
herra hefur gert. At-
hyglisvert er að sam-
gönguráðherra skuli fara gegn áliti
Samkeppnistofnunar. Ráðherra ger-
ir sér ekki grein fyrir að Frami er
Leigubílaakstur
Stjórnendur Frama vita
ekki hvað samkeppni er,
segir Jdn Stefánsson,
eða hvernig á að bregð-
ast við samkeppni.
kominn í einokunaraðstöðu gegn
hinum félögunum, með afgreiðslu
mála í umsjónamefnd. Þeir ritskoða
alla passa sem gefnir eru út af félög-
unum þremur. Stjórn Frama hefur
haldið uppi áróðri gegn hinum félög-
unum og varað menn við að starfa
fyrir þessi félög. Formaður Frama
hefur haft í hótunum við menn ef
þeir færa sig yfir í þessi félög eða
eru búnir að því. Stjómendur
Frama vita ekki hvað samkeppni er
eða hvernig eigi að bregðast við
henni eða hvernig eigi að takast á
við keppinautinn á þessum markaði.
Á fundi sem haldinn var með um-
sjónarnefnd hinn 1. nóvember 2000
spurði Jón Magnússon lögfræðingur
nefndarmenn hvort nefndin væri
ekki ólögleg samkvæmt lögum, og
benti á þau ákvæði sem bent er á
hér á undan. Umsjónarnefnd taldi
að þar sem Frami væri stærsta
félagið í leigubílaakstri væri það
eðlilegast að meirihlutinn réði en
Sigurður Geirdal, sem er fulltrúi
höfuðborgarsvæðis, sagði að í ljósi
þess að dregið væri í efa réttmæti
nefndarinnar skyldi slíta fundi, og fá
úrskurð ráðherra svo um. Ráðherra
hefur ekki úrskurðað í málinu eða
óskað eftir að fá dómkvadda menn
til að skera úr um þetta mál. Á með-
an verða félögin að fara eftir lögum
Frama.
Þó svo að Alþingi setji lögin og
reglugerðina er Frami leiðandi aðili
fyrir umsjónarnefnd í málefnum
leigubíla og verða félögin að fara
eftir þeim lögum á meðan þau
stangast ekki á við landslög eða
önnur lög. Ef þetta eru vinnubrögð
ráðamanna í stjómkerfi landsins
skilur maður af hverju stjómkerfið
skilar ekki betri árangri til lands-
manna.
Höfundur er leigubústjóri.
Jón Stefánsson
Tilboó á
jólapakkasendingum
frá 390 kr. fyrir pakkann um land allt
Þaó er einfalt og óruggt aó scnda jólngjafirnar
i n n a n I a n d s m ed 1. a n d f I u i n i n gu m Sa m ski p u m . I>11
gengur frá sendingunni, skiltii liaiia e 11 i r a
na'stu flutningamióstóó og hún er i flestum tilvikum
komin a álangastaó innan sólarlirings.
Vió hjóðurn auk jiess þrjár stæróir af umbúðum lyrii
smsrri sendingar og ei |>á sendingarkost naðtn
i n n i f a I i ri n í v e r ó i .u m b ú ó a n n a .
Skútuvogi 8, s. S69 8400
ttfciWNSi,*
RCD1350
m
R
GRUnDIG
w
WT
14.900
sám
GRURDIG
RR770
Sjónvarpsmidstödin
AKAI cnunoic UNITED TENS4I HITACHI KDLSTER harman kardon dfll.