Morgunblaðið - 20.12.2000, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 7 fcr
™SS2l«^tans
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDBÖND
Seuss yrði
ánægður
Þegar Trölli stal jólunum
(How the Gi-inch Stole Christmas)
Ottó Geir Borg
Danskt
kvenræði
Komið að þér, elskan
(Skat, det er din tur)
(•amanmynd
ick'k
Leikstjóri: Mette Louise Knudsen.
Handrit Annamarie Aaes. Aðal-
hlutverk: Amanda B. Norsker, Tor-
ben Zeller, Karen-Lise Mynster. (93
mín.) Danmörk, 1999. Háskdlabíó.
Öllum leyfð.
ENGINN vafi leikur á því að Dan-
ir standa fremstir allra Norður-
landaþjóða í kvikmyndagerð og hafa
reyndar fyrir löngu
skipað sér meðal
þeirra bestu í
heiminum á því
sviði. Myndin sem
hér er á ferðinni er
kannski ekki skín-
andi dæmi um
þessa fyrirmyndar-
framleiðslu en hef-
ur þó ýmislegt
fram að færa. Enginn vafi leikur á
því að Vesturlandabúar lifa í karl-
miðuðu samfélagi en hér er varpað
fram þeirri spurningu hvernig vera-
leikinn liti út ef málum væri öfugt
farið, ef konur réðu lögum og lofum í
viðskiptaheiminurn en karlar væru
nýbyrjaðir að sjá einhvern árangur
af áralangri jafnréttisbaráttu. Þetta
er gert af nokkurri leikni og er það
helsti styrkur myndarinnar að
félagslegar vangaveltur víkja aldrei
fullkomlega fyrir bröndurum og
gamanmálum.
Heiða Jóhannsdóttir
Teiknimynd
★★★★
Leikstjóri: Chuck Jones. Handrit:
Dr. Seuss byggt á bók hans. (26+40
mín) Bandaríkin. Bergvík, 1966.
Myndin er öllum leyfð.
Snillingurinn Chuck Jones er hér
á ferð með útgáfu sína af hinu sígilda
verki dr. Seuss um hinn úrilla Trölla
sem ákveður að
eyðileggja jólin
fyrir íbúum smá-
bæjar nokkurs sem
er undir fjallinu
sem hann býr í.
Þótt íslenska tal-
setningin sé mjög
góð og textinn vel
unninn er erfitt að
feta í fótspor radd-
ar gamla Frankenstein-skrímslisins
Boris Karloff. En því er ekki hægt að
neita að Trölli á heima í myndbands-
tækjum allra landsmanna um jólin
og jafnvel oftar á árinu. Einnig fylgir
á myndbandinu saga um fílinn Hor-
ton sem heyrir rödd einn daginn og
eftir nána athugun kemst hann að
því að hún kemur frá litlu blómi.
Þessi saga er einnig bráðskemmtileg
og gefur Trölla lítið eftir. Sam-
myndbönd eiga þakkir skilið fyrir að
gefa þessi tvö meistarastykki út á
myndbandi.
Ný Radiohead-plata á næsta ári
Kid B?
ÞEGAR Radiohead hrukku loks í gír við
vinnu á síðustu plötu sinni, hinni hugrökku
og glæstu smíð Kid A, flóði sköpunargleð-
in fram í stríðum straumum. Svo stríðum
reyndar að þeir félagar sátu uppi með um
25 lög er upptökum lauk. Ákvörðun var
tekin um að vera ekkert að liggja á þessu
eins og ormar á gulli heldur gefa þetta
bara út hið snarasta.
Glæný breiðskífa með Radiohead mun
því líta dagsins ljós í mars eða apríl á
næsta ári og mun hún bera hið fróma
nafn Amnesiac en þar verður að finna
lög úr sarpi Kid A ásamt glænýjum lög-
um. Ekki gleyma þessari frétt.
Morgunblaðið/Birgir Steinarsson
Jonny Greenwood, gftar-
Ieikari í Radiohead, á
hljomleikum í Kaup-
mannahöfn siðasta haust
Kirsty MacColl látin
SONGKONAN Kirsty MacColl
er látin, 41 árs að aldri. Plötu-
fyrirtæki hennar V2 sendi frá
sér fréttatilkynningu þess efn-
is.
Hún var í fríi í Mexíkó þar
sem hún stundaði köfun og tal-
ið er að hún hafi látist af slys-
förum við þær.
Söngkonan var þekkt fyrir
að hafa léð hljómsveitinni
Pogues rödd sína á jólaslag-
aranum „Fairytale of New
York“, sem sveitin gerði vin-
sælt árið ’87, og fyrir að hafa
sungið lagið „There’s a Guy
Works Down the Chip Shop
Swears He’s Elvis“.
Reuters
www.mbl l.is
Fimmtán manns voru klukkustundum saman í stórkostlegri
lífshættu ofan á þaki rútu í beljandi Jökulsá á Fjöllum I
sumar, eftir að straumurinn hafði borið rútuna rúman hálfan
kílómetra. 1 bókinni lýsa Islendingar og Austurríkismenn
aðstteðum þarsem líklegra þótti að þeir myndu deyja en
komast af. Rútubílstjórinn segir í fyrsta sinn opinberiega frá því
þegar hann lagðist til sunds til að ná í hjálp.
I bókinni er einnig einstæð ffásögn fjölskyldu
og björgunarfólks af því þegar leitað var
tveggja barna sem voru grafin á þriðju klukkustund undir
snjóflóði í Biskupstungum.
Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa fengið feiknagóðar
viðtökur hjá fesendum. Þær lýsa mannraunum, kjarki og
áræði venjulegs fólks og eru bæði spennandi og lipurlega
skrifaðar. Það kunna lesendur að meta, því að fyrri
bækur Óttars hafa allar komist á metsölulista.
2. sæti
me*ö!ulis tans
Óttar Sveinsson er þvi einn mest seldi höfundur seinni ára.
„Seiður Grænlands er skemmtileg aflestrar og í bókinni eru
óborganlegar frásagnir. Höfundurinn er lipur penni og skrifar af
smitandi áhuga...
Hreindýrabóndinn Stefán Hrafn Magnússon er hið
íslenska athafaaskáld lifandi komið, maður af því
tagi sem hefar þörf fyrir að byggja upp hvar sem
hann kemur og gerir það af slíkum þrótti að menn
fyllast fítonskrafti bara af því að lesa um hann...
Ástarævintýri þeirra Jónatans Motzfeids,
formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og
eiginkonu hans Kristjönu Guðmundsdóttur eru
gerð ffábær skil...
Seiður Grænlands slær óviðbúinn lesanda
þess konar töfrum að fyrr en varir er hann
genginn inn í heim ævintýrisins og leggur
hana ekki frá sér fyrr en fulllesna. “
(Hrafn Jökulsson, Bókavefurinn)
Hreindýrabóndinn áritar
Reynir Traustason og
Stefán Hrafn Magnússon
órita Seið Grœniands
í Hagkaup, Kringiunni.
fimmtudag kl.19-21
Reynir Traustason og
Stelán Hraln Magnússon
árita Seiö GrSBnlands
í Bónus. Holtagörðum,
löstudag kl. 11 -18;30
en.I,urmin
Morgunbíaöið n,n8ar'
6' ' 12. desember
. ... <teiö Gtæn'”"""
antB i'ií Skriöulandi
í Jónsbuö á SKtt
íOalasýslu.
timmtudag kl. 1®'___
9.sseti |
I
(jvieesur 09 íl6 jg
IzPiag á leiö i
VBrslani
“VŒmbar
ÍSLENSKA BÓKAÚTGÁFAN
Dalvegi 16b, sími 554 7700