Morgunblaðið - 22.12.2000, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNB LAÐIÐ
Tvö vinsælustu fjarstýrðu leikföng ársins.
Stöðumat um atvinnu
á Vestfjörðum
STJÓRN Byggðastofnunar ákvað á
fundi sínum í fyrradag að láta gera
stöðumat á atvinnuástandi á norðan-
verðum Vestfjörðum. Vonast er til að
skýrslan verði tii um miðjan janúar.
Fram kemur í minnisblaði um
málið sem þróunarsvið Byggðastofn-
unar og Atvinnuþróunarfélag Vest-
fjarða lögðu fyrir stofnunina að íbú-
um á norðanverðum Vestfjörðum
hefur fækkað undanfarin ár sam-
hliða samdrætti í sjávarútvegi. Kvóti
hefur verið seldur af svæðinu, frysti-
húsum fækkað og stórir togarar
seldir annað. Segir að samdrátturinn
komi niður á öðrum greinum at-
vinnulífsins og þá sérstaklega þjón-
ustufyrirtækjum í sjávarútvegi.
Á móti komi að smærri bátum hafi
fjölgað nokkuð og minni fiskvinnslu-
fyrirtæki tekið til starfa. Það nái þó
ekki að vega upp á móti þeirri nei-
kvæðu þróun sem verið hafi undan-
farin ár. Fram kemur að ætla megi
að afleiðingarnar hafi verið þær að
meðallaun íbúa á svæðinu hafi lækk-
að á sama tíma og íbúum fækkar og
tekjur sveitarfélaga því dregist sam-
an.
Við gerð skýrslunnar verður sér-
staklega litið til þróunar íbúafjölda,
atvinnu og sjávarútvegs frá árinu
1995.
Menningarveisla í Grafarvogi
Stjörnumessa í
Bílastjörmmni
UTSKALDIN svo-
kölluðu, þ.e. skáld
og rithöfundar
búsett í Grafarvogi, koma
fram á svonefndri
Stjörnumessu í Bíla-
stjörnunni, Bæjarflöt 10 í
Grafarvogi, í dag milli
klukkan 16 og 18. Hver
skyldi vera aðdragandi að
því að slík samkoma er
haldin í bílaverkstæði?
Því svarar Kristmundur
Árnason sem rekur Bíla-
stjörnuna.
„Þessi ágæta samkoma
var haldin á árum áður í
fyrirtæki sem hét Sviss-
inn sem staðsett var á
Tangarhöfða f Reykjavík.
Þessi samkoma vakti
jafnan mikla athygli og
þar komu í áranna rás
fram margir ágætir og kunnir
skemmtikraftar, svo sem Krist-
ján Jóhannsson, Bubbi Morth-
ens, Diddú og fjölmörg skáld og
skemmtikraftar úr öðrum list-
greinum. Það er í raun verið að
endurvekja þessar skemmtanir,
en á nýjum stað. Þetta er í fyrsta
skipti sem Stjörnumessan er
haldin í Bílastjörnunni."
- Er aðstaðan góð hjá þér fyrir
svona uppákomu?
„Við erum í 900 fermetra hús-
næði sem er aðeins tveggja ára
gamalt og sérhannað undir bíla-
málun og bílaréttingar. En eigi
að síður er hér góð aðstaða fyrir
hvers konar skemmtanir, gólf-
pláss mikið og góður hljómburð-
ur - hér er hátt til lofts og vítt til
veggja.“
-Hverjir standa að Stjörnu-
messunni?
„Að Stjörnumessunni standa
Grafarvogsskáldin, Ingvar
Helgason hf., Miðgarður, fjöl-
skylduþjónusta, Bræðurnir
Ormsson og Sandholts bakarí."
-Hvað á að fara þarna fram
nánar til tekið?
„Skáldin lesa úr bókum sínum.
Skáldahóp þennan skipa Aðal-
steinn Ingólfsson, Ari Trausti
Guðmundsson, Einar Már Guð-
mundsson, Gyrðir Elíasson,
Hjörtur Marteinsson, Kristín
Marja Baldursdóttir, Ragnar
Ingi Aðalsteinsson og Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson. Oll eiga þau
það sameiginlegt að búa í Graf-
arvogi. Tvö gestaskáld koma
þarna fram sem ekki búa í Graf-
arvogi, þau eru Vigdís Gríms-
dóttir og Linda Vilhjálmsdóttir.
Bubbi Morthens flytur nokkur
Bellmannslög við undirleik Guð-
mundar Péturssonar gítarleik-
ara. Tónlistarskóli Grafarvogs
verður með jólalög. Valdi koppa-
sali mun vera hér með nokkra vel
valda hjólkoppa. Flugeldasýning
verður að hætti Bílastjörnunnar
í lok dagskrár. Aðgangur er
ókeypis og eru allir áhugamenn
um bókmenntir og jólastemmn-
ingu hvattir til að mæta.“
-Ert þú áhugamaður um bók-
menntir?
„Já, ég les nokkkuð _________
af skáldsögum,
spennusögur og fræði-
rit um bíla og veiði og
svo hitt og þetta sem
vekur áhuga minn
hverju sinni.“
-En tónlist, er hún
ofarlega á dagskrá? —■——
„Já, ég hlusta töluvert af tón-
list, einkum finnst mér gaman að
gamalli rokktónlist.“
- Sóttir þú sjálfur þessar sam-
komur í Svissinum ?
„Já, ég gerði það. Okkur hjá
Bílastjörnunni var boðið reglu-
lega á þessar samkomur hjá
Kristmundur Arnason
► Kristmundur Árnason fæddist
f Kópavogi 30. september 1960.
Hann lauk gagnfræðaprófí frá
Þinghólsskóla 1977 og er með
bílamálunarmenntun frá Iðn-
skólanum í Reykjavík. Hann hef-
ur starfað sem sölumaður en að
mestu leyti þó við bílamálun og
bflaréttingar. Kona Kristmundar
er Karlotta Pálmadóttir hús-
móðir og eiga þau þrjú börn.
Verið að end-
urvekja menn-
ingarupp-
ákomur sem
áður voru í
Svissinum
Svissinum, enda vorum við ná-
grannar og eftirvæntingin var
orðin mikil þegar við sáum á
dagatalinu að kominn var des-
ember. Okkur fannst mikil þörf á
að endurvekja þessar samkomur
og það andrúmsloft sem þar
ríkti.“
-Eru svona samkomur mikil-
vægar fyrir borgarhverfi?
„Ég mundi telja það, við hóuð-
um saman öllum þeim sem eru
með atvinnurekstur hér í kring.
Við bárum út dreifibréf og létum
orð berast um að Stjörnumessa
stæði til. Við höfum fengið gríð-
arlega góð viðbrögð. Fólki fannst
að sögn upplagt að ljúka vinnu-
viku hér fyrir jólin með þessum
hætti.“
- Er mikið að gera í bílamálun
og bílaréttingum?
„Já, það hefur verið mikið að
gera hjá okkur gegnum árin.
Þetta virðist vera sívaxandi
grein, enda bætist stöðugt í bíla-
flota landsmanna. Fólk gerir
meiri kröfur til bíla sinna í dag
en það gerði áður. Það vill hafa
meira af aukahlutum í þeim og
að þeir líti betur út.“
- Gegnir Miðgarður, fjöl-
skylduþjónusta, miklu hlutverki
í Grafarvoginum ?
„Já, ég tel það vera, gríðarlega
stóru hlutverki. Þeir eru í því að
hjálpa unglingum og efla menn-
ingaráhuga í hverfinu - örva
mannlífið að ýmsu leyti.“
-Er mikiil atvinnurekstur í
Grafarvogi?
„Hann er sífellt að aukast.
Grafarvogur hefur ákveðna sér-
stöðu í borginni, þetta er eins og
lítið bæjarfélag. Það er eins og
________ það gerist eitthvað
þegar fólk ekur yfir
Gullinbrú.
I hverfinu búa um
20 þúsund manns og
þetta er það hverfi
Reykjavíkur sem kem-
ur líklega til með að
stækka mest í framtíð-
inni. Ég tel að hér hafi borgaryf-
irvöldum tekist að skiþuleggja
eitt skemmtilegasta hverfi borg-
arinnar. Hér eru í góðu lagi að
mínu mati skólamál, samgöngu-
mál, þjónusta og tengsl við nátt-
úruna er fyrir hendi. Hér líður
öllum vel.
I
6
I
I
I
I
\
H
f
i