Skírnir - 01.01.1895, Side 21
Menntun og menning.
21
lenskir námsmenn: 1 guðfræði Sigurður P. Sivertsen, og í lögfræði Gísli
ísleifason og Sigurður Pjetursson. Þeir fengu allir 1. einkunn.
Bmbættispróf við prc.staskólann tóku þrír: Páll Hjaltalín Jónsson
(I. 47), Jón Jtefánsson (II. 37) og Pjetur Hjálmsson (II. 23). E>ar voiu
um haustið 5 lærisveinar, en 9 við læknaskólann. Þaðan útskrifaðist eng-
inn um vorið. — Heimspekisprðf tóku 8 stúdentar við prestaskólann og
5 íslenskir stúdentar við háskólann.
Yið lærðaskólann tóku 10 stúdentspróf; 2 fengu ágætiseinkunn, 4
fyrstu einkunn og 4 aðra einkunn. í byrjun skólaársins voru þar 113
lærisveinar.
Prá Möðruvallaskóla útskrifuðust 12 — þar á meðal 1 stúlka — 8
með 1. eink. og 4 með 2. eink. Prá Plensborgarskóla útskrifuðust 17.
Þar leystu og fjórir af hendi kennarapróf.
í kvennaskólanum í Eeykjavik voru um haustið 41 námsmey, i Lauga-
landsskóla 23 og i Ytri-Eyjarskóla 29. Þar varð sú breyting á, að ,EIín
Briem hætti að vera forstöðukona skólans; bafði bún haft það starf á
bendi 12 ár með miklum sóma. Porstöðukona skólans varð Guðrún Jóns-
dóttir (prófasts Þórðarsonar frá Auðkúlu).
Yið stýrimannaskólann tóku 8 hið minna stýrimannapróf um vorið —
og fengw allir ágœta einlcunn.
Prá búnaðarskólanum á Eiðum útskrifuðust 3, frá Hólaskóla 13, frá
Hvanneyrarskóla 2, frá Ólafsdalsskóla 6.
íslenskur maður einn, Stefán Eiríksson af Jökuldal, lauk i Kaup-
mannahöfn námi í trjeskurðaríþrótt við ágætan orðstír.
Landsjððsstyrk — alls 4000 kr. — fengu 20 barnaskólar í sjöþorpum
og verslunarstöðum (12 á Suðurlandi, 5 í Vestfirðingafjórðungi, 2 á Norð-
landi og 1 á Austfjörðum). — Styrkur úr landsjóði til barnakenuara var
4800 kr, Fiestir sveitakennarar voru í Eyjafirði (16) og Þingeyjarsýslu
(14) og þar næst í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslu (13 í hvorri).
Á aðalfundi Kennarafjelagsins (6. júlí) kom málefni það til umtals, er
verið hefur eitthvert helsta umræðuefni menntamanna vorra hin síðustu
misseri: Sambaud lutínuskólans og gagufræðaskólans á Möðruvöllum.
Hjer skal drepið á nokkur helstu atriði í íslenskri bókagerð og blaða.
Skömmu eptir áramótin hófust hjer 2 máuaðarrit, er kvennmenn stýra.
Heitir annað Pramsókn og er gefið tit á Seyðisfirði af þeim mægðum hús-
frú Sigríði Þorsteinsdóttur og Ingibjörgu Skaptadóttur. Hitt blaðið heitir
Kvennab'.aðið, en útgefandi er húsfrú Briet Bjarnhjeðinsdóttir; er það