Skírnir - 01.01.1895, Qupperneq 27
Misferli og mannalát.
27
Lárus Jónsson frá Búastöðum, einn af helstu bændum Eyjarmanna. 16. s.
m. drukknaði maður úr Selvegi. 21. s. m. fórust karlmaður og kvennmað-
ur i snjóflóði í Vattarnesskriðum. 23. s. m. varð úti Jón bóndi Bjarnason
frá Bambárvöllum í Bitru. 25. s. m. drukknuðu 2 menn í lendingu í
Þykkvabæ. í s. m. varð úti 4 ára gamalt barn frá Dagverðarnesi á Rang-
árvöllum. Dá varð og maður úti á Fjarðarheiði eystra. í maí (2.) drukkn-
aði maður úr Vogum syðra. 4. s. m. drukknuðu 4 menn í lendingu við
Akranes. 17. s. m. drukknuðu 3 menn í Eyjafirði, á leið úr Hrólfsskeri.
18. s. m. fjell maður útbyrðis á ísafirði og drukknaði. 23. s. m. drukknaði
maður frá Krossanesi i Húseyjarkvísl. 1 júlí (23.) drukknaði JenB skipstj.
Hjaltason í Bolungarvík. í s. m. fjell Magnús SigurðBson, bóndi frá Skapta-
felli í Öræfum, af hestbaki og beið af því bana. Um miðjan þann mánnð
fjellu 3 börn í sjóðandi vatn og biðu öll af því bana, eítt í Beykjavík,
annað á Seyðisfirði og hið þriðja á Vestra-Miðfelli í Borgarfirði. í ágúst
fjell Gísli Jónsson bóndi á Eystri-Loptsstöðum úr beyi, og dró það bann
til dauða. í sept. (5.) drukknaði verslunarmaður frá ísafirði af bátkænu.
22. s. m. drukknaði í Djúpadalsá Jónas Jónsson frá Hrafnagili; hafði hann
þótt heppinn læknir og merkur maður í mörgu. Um sömu mundir fórst
unglingur frá Kaldalæk við Vattarnes. 1 nóv. (12.) fjell útbyrðis af
bryggjugörðum í Granton Jón kaupmaður Þorsteinsson úr Reykjavík. 20.
s. m. drukknaði i Bakkaá í Hörðudal unglingsmaður frá Höfða í Eyjahr.
í s. m. beið maður frá Kjarna í. Eyjafirði bana af byssuskoti. I des. (7.)
týndist í snjóflóði maður frá Fagradal í Mýrdal. 9. s. m. varð maður úr
Geiradal úti veBtur á Ströndum. 21. s. m. drukknaði í Hörgá Jón skip-
stjóri Jónsson frá Arnarnesi, einhver efnilegasti ungra manna þar nyrðra.
31. s. m. fórst kvennmaöur frá Ingunnarstöðum í Geiradal. Tveir menn
dóu voveiflega í Reykjavík, annar um sumarið og hinn um haustið, fund-
ust báðir örendir í flæðarmáli.
Sjálfsmorð. Nokkru eptir nýár týndi kona sjer frá Egilsstöðum í
Ölfusi. Skömmu síðar veitti gamall maður á Akureyri sjer bana. Um
vorið drekkti sjer unglingsmaður á Akranesi og um sömu mundir annar í
Reykjarfirði í ísafjarðarsýslu. Gömul kona á Saurum í Álptafirði vestur
rjeð sjer þá og bana. Um sama leyti týndi sjer í Hjeraðsvötnum ung-
lingsmaður frá Stekkjarflötum. Bóndi einn í Mjóafirði austur veitti sjer
og bana um vorið. Maður frá Eyrarbakka banaði ejer um haustið í Hólmsá
í Skaptafellssýslu og stúlka frá Múlakoti i Fljótshlíð í Myrká. Um vet-
urinn týndi sjer á Vatnshóli í Húnavatnssýslu maður frá Sporðshúsum, —