Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1907, Page 3

Skírnir - 01.04.1907, Page 3
Tómas Sæmundsson. 99 svipinn, og skilað næstu kynslóð lifandi mörgu því fræinu sem kulnað hefði út og dáið, ef ósérhlífin hönd þeirra iiefði ekki hagrætt því og skýlt Þeir hafa haldið vak- andi þeim eldinum sem aðrir kveiktu í kyndlunum þegar mest á reið. Tómas Sæmundsson var einn slíkra manna, einn þeirra sem bera öll áhugamál ættjarðar sinnar fyrir brjósti, og eru á hverri stundu boðnir og búnir til að ljá þeim hjálparhönd. Æfi hans var stutt, hann var tæplega 34 ára þegar hann dó, og hann var síðustu ár sín þjáður af sjúkdómi þeim er dró hann til bana, og þó hefir hann hreyft við fiestum áhugamálum þjóðar sinnar, og í ritum hans hillir undir fjöldmargar þær hugsjónir er síðan hafa verið á dagskrá þjóðarinnar. Hvert sem hann lítur sér hann verk að vinna, áhugamál hans eru óþrjótandi, en ekki verður það til að tefja fyrir framkvæmdum hans, því hann var jafnframt gæddur þeirri gáfunni sem farsælust er allra, að grípa fyrsta tækifærið til að ljúka því af sem hendinni er næst í hvert sinn, og tefja sig aldrei á hugleiðingum um það hvað fyrst bæri að gjöra. Þess vegna fekk hann, þrátt fyrir vanheilsu, int svo mikilsvert starf af hendi hinn stutta tíma sem honum entist aldur. En einmitt fyrir það hve margvísleg áhugamál hans voru og live víða hann kom við, mun alþýðu manna nú á tímum vera ókunnara en skyldi hve mikill maður liann i raun og veru var og hve mikla þökk og ást þjóð vor skuldar honum. Málefni þau sem hann barðist fyrir horfa nú alt öðruvísi við en meðan hann var uppi, svo er fyrir að þakka starfsemi hans og þeirra sem arfinn tóku eftir hann. Þess vegna munu og fáir lesa ritgjörðir hans, sem allar snúast að ástandinu eins og það var á hans dögum, og eiga sér þvi ekki eins fúsrar áheyrnar von og það sem nú er efst á baugi. Hins vegar eru rit hans nú í fárra höndum, og alt miðar þetta að því að menn gleymi smám saman hver hann var og hvað hann hefir fyrir oss gjört. En sjálfra vor vegna megum vér ekki gleyma

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.