Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1907, Side 4

Skírnir - 01.04.1907, Side 4
100 Tómas Sæmundsson. honum, því á bak við orð hans og verk hillir undir mikil- menni, sem í mörgu getur verið fyrirmynd fyrir alda og óborna. — Æflágrip hans hefir tvívegis verið ritað: í Fjölni (6. ári, bls. 1—6) af Jónasi Hallgrímssyni, og Andvara (14. ári, bls. III—XVI) af Stgr. Thorsteinssyni. Skal eg því að eins geta þess, að Tómas Sæmundsson var bóndason úr Rangárvallasýslu, fæddur 7. júní 1807. Hann útskrifaðist tvítugur úr Bessastaðaskóla, og siglir samsumars til Khafnarháskóla. Þar lýkur hann embættisprófi í guð- fræði, í janúar 1832. Hann leysir öll próf sín af hendi með lofi. Að því búnu útvegar hann sér með miklum dugnaði fé til að ferðast um hin helztu menningarlönd Evrópu. Hann leggur af stað frá Höfn afmælisdaginn sinn 25 ára gamall, 7. júní 1832, fer yfir Swinemunde og Stettin til Berlinar, þaðan til Potsdam, Wittenberg, Leipzig, Dresden, Prag, Waldmiinchen, Regensburg, Munchen, Salzburg, Linz, Wien, Triest, Venedig, Padua, Ferrara, Bologna, Florenz, Rom og Neapel. Þaðan fer hann með skipi til Sikileyjar og austur um Miðjarðarhaf til Grikk- lands og kom til Aþenuborgar, þaðan til Smyrnu í Litlu- Asíu, þá til Miklagarðs og svo aftur sömu leið til Neapel, en þaðan yfir Sviss til Parísar, og loks yfir London til Khafnar í miðjum mai 1834. Fékk hann þá samstundis veitingu fyrir Breiðabólsstað í Fljótshlíð, hélt heimleiðis um sumarið og kvongaðist um haustið heitmey sinni, Sigríði dóttur Þórðar sýslumanns Björnssonar í Garði í Aðalreykjadal. Vorið eftir, 1835, tók hann prestsvígslu og settist að á Breiðabólstað. Þar var hann prestur og prófastur til æfiloka, 17. maí 1841. Hann dó úr brjóst- veiki, er byrjað hafði veturinn sem hann dvaldi í París (1833—1834) og kennir hann um illum aðbúnaði, er hann varð að þola þar fyrir fjárskorts sakir, en jafnframt ef til vill gömlum óhraustleik og illu loftslagi. Ekkert sýnir betur en ferðalag Tómasar, að hann hefir verið af nokkurri annari gerð og meiri fyrir sér en flestir íslendingar á síðari tímum. Það hefir þurft þor og

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.