Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1907, Side 8

Skírnir - 01.04.1907, Side 8
104 Tómas Sæmundsson. að vera kominn tími til að bera þann fána, er þeir brugðu á loft,|hærra en gert hefir verið að undanförnu. Alþýðumentunina vildi Tómas Sæmundsson fyrst og fremst bæta með því að láta semja og gefa út fræðandi og skemtandi tímarit og bækur við alþýðu hæfl, þar á meðal handbækur í öllum helztu vísindagreinum. Vill hann að við hverja kirkju sé sett á stofn bókasafn undir umsjón prests og á kirkjunnar kostnað, eða fá fé til þess með þvi að hækka ljóstollinn. Nefnd manna á að ráða því hverjar bækur skuli semja og gefa út í þessum til- gangi, og sitja í þeirri nefnd lærðustu menn landsins. Hún skyldi og hafa eftirlit með alþýðufræðslunni yfir höf- uð. — Lærða skólann vildi hann flytja til Viðeyjar, bæta liann og auka við hann deild til að undirbúa prestaefni. Fyrir framhaldsmentun presta vill hann sjá með sýslu- bókasöfnum, og ef á þyrfti að halda lögbjóða gjald til þeirra frá hverjum presti. Má geta þess að árið 1837 kom Tómas Sæmundsson á stofn slíku bókasafni fyrir prófastsdæmi sitt. Ritlingurinn um skólamálið er ritaður af eldlegum áhuga, og má þar sjá bóla á ýmsum hinum sömu hug- sjónum er hann síðar reyndi að framkvæma. Stofnun Fjölnis er t. d. framkvæmd tillögunnar um fræðandi og skemtandi tímarit handa alþýðu manna. Og fyrst og fremst við Fjölni er nafn Tómasar Sæ- mundssonar bundið. Honum helgaði hann mikinn hluta krafta sinna og umönnunar þau fáu ár sem hann lifði eftir að hann kom heim, og fyrir Fjölni eru flestar rit- gjörðir lians skrifaðar. Einkennilegt er það, að allar ritgjörðir Tómasar Sæ- mundssonar eru um alíslenzk málefni. Hin afarvíðtæka þekking, sem hann heflr aflað sér með því að sökkva sér niður í hvers konar vísindi og ferðast meðal mestu menn- ingarþjóða heimsins, er í hans höndum að eins meðal til að líta því frjálsari og skarpari augum á málefni þjóðar sinnar. Það hefir verið sagt um mentunina, að hún værl það sem eftir sæti, þegar maður hefði gfleymt öllu sem.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.