Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1907, Page 12

Skírnir - 01.04.1907, Page 12
103 Tómas Sæmundsson. meðferð íslenzkunnar, þau sýna það víða með berum orð- um, að honum er ant um hana og að liann heflr lagt kapp á að fullkomna sig í henni. í formálanum fyrir ferðasögunni getur liann þess og, að hann hafi lesið flest þau íslenzk rit að fornu og nýju sem bezt séu rituð, til þess að læra af þeim málið, en af því að hann hafi haft svo stuttan tíma til þess og átt svo annríkt, hafl ávextirn- ir ekki orðið meiri en þetta, segist því hafa beðið Dr. Scheving að lesa handritið og lagfæra, af því að sér þætti mest um vert að spilla ekki móðurmáli sínu, sem hann telji »hinn stærsta fjársjóð íslands«. Eflaust hafa vinir hans, Konráð og Jónas, haft mikil áhrif á hann í þessa stefnu og verið gæddir miklu næm- ari tilflnningu fyrir fögru og fáguðu máli. Hann kastar því áhyggjum sínum að miklu leyti upp á þá, biður þá að lagfæra málið á ritgjörðunum sem hann sendir Fjölnir og gefur þeim ótakmarkað vald til að fara með þær eins og þeim þyki bezt við eiga, og hann kvartar yfir að málið leggi höft á sig: »Eg væri búini) að rita tífalt meira síðan eg kom til Islands; til nytsemi og fróðleiks landi okkar, ef eg hefði ekki látið málið leggja á mig þvílíka fjötra, og það alt til einskis, því hvorki er það brúkanlegt að heldur, og ef að svo væri, þá yrði það ekki lengur hin algenga íslenzka, heldur eiuungis mál hinna útvöldu«, segir hann í bréfi til Konráðs. En hvernig hann sjálfur leitá breytingarnar, sem félagar hans gerðu á ritgjörðum hans, kemur skýrast fram í hinu þungorða bréfl til Jón- asar, 1. febr. 1839: »Eg játa, að málið hafið þið alt af bætt hjá mór, en hinar breytingarnar ykkar hafa verið tvennsslags: Fyrst með tilliti til meiningarinnar, er þið hugðuð að sjá róttara og breyttuð því, til að fá hugarburð ykkar eður »Yndlingsthemata«; fyrir þær kann eg ykkur litlar þakkir, því þið sköðuðuð þá oft hugsanir mínar, er þið skilduð þær ekki, svo fyrir það vantar sumstaðar ír sumstaðar er fyrir það orðið meira á huldu, og vil eg þar oftast- heldur eiga eins og áður var, Annarstaðar hafið þið dregið úr

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.