Skírnir - 01.04.1907, Síða 20
116
Tómas Sæmundsson.
Lengi mun hans lifa rödd,
hrein og djörf, um hæðir, lautir,
húsin öll og víðar brautir,
er Isafold er illa stödd«.
En hvenær er þjóð illa stödd? Hún er það, ef kuldi
kæruleysisins kemst inn að hjarta sona hennar og dætra,
ef eldur áhugans sloknar. Hún er það, ef einstaklingarnir
hugsa fyrst um sjálfa sig, en síðast um hag ættjarðar
sinnar. Hún er illa stödd, ef börn hennar hætta að berjast
fyrir því sem satt er og fagurt og gott og nytsamlegt, án
tillits til þess hvort það er þakkað eða vanþakkað. Hún
er illa stödd, er menn gleyma því, að vegurinn til full-
komnunar er vegur áræðis og atorku, vegur karlmensku
og drengskapar, eða eins og Konungsskuggsjá kemst að
orði: »ef úáran kann at koma í fólkit sjáltt, sem byggir
landit«.
7. júní 1907.
Guðm Finnbogason.