Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1907, Side 22

Skírnir - 01.04.1907, Side 22
118 Frá Róm til Napoli. 30—40 höfnum, þar sem fegurst er og mest aS sjá um MiSjarðar- hafiS, Grikkland og Litluasíu alt til MiklagarSs, hvaðan snúa átti heimleiðis.1) Á skipið gátu komist svo sem 100 herramenn og næstum annað eins af þjónustufólki að meðtöldum öllum hásetum skipsins. Þetta var því einhver f/silegasta ferð, sem nokkurn tíma hefir stofnað veriö [til], því bæði mundi hór geta að líta einhverja hina fegurstu og markverðustu staði veraldarinnar, og vart munu heldur þess dæmi, að menn úr jafnmörgum löndum hafi í einu félagi gerst til svo langrar ferðar, hvar alt skyldi við hafa, er fengið gæti sem mestrar ánægju; en þó ódýrleikinn væri heuni einnig til gildis talinn, og hún ekki mætti heita kostnaðarsöm, eft- ir því sem ferðir gerast þar um svæði og með þvílíkum skipum, þá var hún samt þeim hollust, sem nokkurt höfðu bein — eða réttara silfur — í hendi, því að fararkaupið var um alla fjóra mánuðina fyrir þá sem voru í herramanna eða heldri manna töl- unni minst 300 spesíur, mest 420 spesíur, og var þar með að eins borg- aður flutuingurinn um sjóinn og fæði, meðan á honum stóð; í öðru lagi varð að borga feröalögin á landi og mat þegar skipið var kyrt á höfimm og þurfti til þess einu sinni eða kannske tvisvar annaö eins, þó menn, þegar svo varð viðkomið, gæti sparað sór náttstaði á landi með því að sofa á skipinu, sem leyfilegt var án frekari kostnaðar. Þó eg fyndi mig helzt ófæran að kosta svona miklu til fararinnar, þótti mór vissara að vera í Neapel um það leyti skipið legði út ef eitthvað kynni ráðast úr með farið. Eg leitaöi mór því lags þangað og kom mór í vagn og átti að borga fyrir flutningskaup og fæði að kvöldi og gistingu meðan stæði á ferðinni 5 scudi eða specíur; er það hér um . . ,2 rnílur vegar og oftast farið á 4 dögum. Eg kvaddi kunningja míua og fór á stað því að mór tjáði nú ekki að dvelja lengur, fyrst svona hagaði til, en viljugur fer enginn frá Róm undir páskana, því þá er svo mikið um d/rðir, sem ekki á sinn líka í heiminum og flestum mun minn- isstætt, sem það hafa séð. AS vísu var um alla föstuna kyrt og hljótt um staðinn sem auður væri, en þó tekur yfir þegar hin síð- asta vika fyrir páskana byrjar; það er þá svo sem allur bærinn ífærist sorgarbúningi, alt er þegjandi, klnkknahljómurinn hættir og *) Frá þessari ferð sinni skýrir höfundurinn stuttlega i bréfi til föð- ur sins, dags. í Neapel 28. ág. 1833, eftir að hann er kominn aftur til Italiu, sbr. „Bréf Tómasar Sæmundssonar11 (XXI. bréf). !) Eyða i handritinu. *

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.