Skírnir - 01.04.1907, Side 38
134
l'rá Róm til Napoli.
yfir drögin austur af þeirn og veit [maSur] nú ekki fyrri til en fer
að sækja niSur í móti og sór maSur þá í einu út yfir sjóinn, yfir
borgina fyrir neSan sig vestur meS holtinu, sunnan í því, niSur aS
sjó, og norSan megin viS flóann, en austanvert og rétt inn af fló-
anum, fyrir miSju hans, er Yesúvíus, og á bak við hann sunnan-
vert kemur fjallhryggur aS austan frá meginfjöllunum og skagar
snarbrattur vestur í sjó sunnanvert viS flóann, og út af odda hans
liggur eyjan Caprí.
Veginum veitir nú niður eftir og vestur á við, sunnan í miSju
boltinu og ofanhalds eSur á bak við bæinn, svo aS til hægri handar
eru brekkur nokkrar og holt, en fyrir neðan og austan megin til
vinstri handar lægra mikið, þar til Vesúvíus og hraunin, sem flotið
hafa úr honum, taka við. A allar hliðar er, aS kalla má, einlæg
húsaþyrping innan um aldingarðana, svo að óglögt markar fyrir
hvar borgin tekur við ; þó eru meðallagi vandaðir grjótveggir um-
hverfis hana og þegar að þeim kemur má segja, að komið sé til
Napoli, og þá um leið takmarki reisunnar náð.
Þegar kemur inn fyrir [borgar]hliSið fara húsin aS verSa áfast-
ari, en aldingarSarnir hætta og kemur þá brátt í aðalstræti borg-
arinnar, Tóledó-strætið, sem fer eftir endilangri borginni og nær
fram aS sjó. Er það geysilangt og breitt og hjá því beggja vegna
eru flestar þær byggingar, er helzt kveSur að í borginni. Við ókum
langt niður eftir strætinu; voru menn flestir þá á gangi, er komið
var undir það, að hringt yrði til kvöldtíða, enda hafði eg aldrei
séð annan eins fólksgrúa saman kominn og lá við eg yrði forviða.
Strax og eg kom niður af vagninum, fóru Lazzarónarnir aS sviftast
á um ferðatösku mína, og þaut einn meS hana á burt og baS mig
fylgja sór, er hann kvaðst mundu vísa mór á gott herbergi. Fór
hann með mig langar leiðir og marga króka, og leizt mór ekki á
samastaðinn, sem hann vildi, [að] eg tæki. En sem eg að lyktum
hótaði honum illu, ef hann væri að flæma mig þetta lengur, varð
hann óvenju lúpulegur. Loks kom eg inn á einn staS, hvar mér
leizt bezt á og tók eg mór þar vist. Átti þar húsum aS ráða ekkja
nokkur spönsk og systir hennar; voru þær vel til mín og var eg
til húsa hjá þeim meðan eg að þessu sinni dvaldi í borginni1).
*) Dvöl Tómasar í Neapel var í þetta sinn nokkuð á þriðju viku til
16. april. Þá leggur hann á stað í austurför sina til Grikklands, Litlu-
asíu og Tyrklands og kemur ekki aftur til Neapel fyr en 25. ágúst um
sumarið.