Skírnir - 01.04.1907, Qupperneq 59
Þjóðleikhús.
J55
A’crða bent á það, að Reykjavíkur þingmenn hafl greitt
atkvæði á móti brúm eða öðrum fjárveitingum, til ein-
stakra landshluta, sem hlutfallslega kostuðu meira eftir
fólksfjöldanum, sem þeirra gat notið, en leikhúsið mundi
kosta í hlutfalli við fólkstölu Reykjavíkur. Ymsar fjár-
veitingar má beuda á, sem að eins eru veittar sérstökuin
flokkum manna, og enginn lætur sér koma til hugar að
telja eftir. Hálf miljón króna var greidd úr landssjóði
til þess að baða fénað hér um bil 8000 fjáreiganda. Til
þess að styrkja búnað var veitt 1906 og 1997 meira en
130000 kr. á ári. Þeir sem lifa á búnaði hér á landi eru
víst ekki fleiri enn 40000 manns. Þetta er ekki sagt i
þeim tilgangi að telja fjárveitingarnar eftir, eða til þess
að reyna að draga úr þeim framvegis á nokkurn hátt, held-
ur að eins til að benda á, að einstökum héruðum, og ein-
stökum flokkum manna, er oft veitt fje, sem miklu mun-
ar, í sérstökum tilgangi, og að það fé er oft mörgum sinn-
um meira en það, sem nú er farið fram á.
Síðan landsmenn fengu sjálfir atkvæði um fjárhag
sinn o" framkvæmdir, má skifta fjárhagsstjórn þingsins í
tvö tímabil, eftir hugsunarhættinum, sem ráðið hefir mestu.
Fyrra tímabilið nær frá 1874 til 1891, eða hér um
bil, og hitt tímabilið frá 1891 og til þessa dags. Fjár-
málaskoðanirnar á fyrra tímabilinu voru líkar hugsunar-
hætti gamalla bænda fyrir miðbik fyrri aldar. Fólkið
átti að búa í lágri baðstofu, strompurinn átti helzt að
vera byrgður vegna. hlýindanna, sem það hafði í för með
sér. Ef skjárinn rifnaði, þá var troðið upp í hann, birtu
þurfti e-kki mikla; ef ein rúðan brotnaði í fjögrarúðu
gluggunum, þá var tréhleri negldur fyrir hana, ef önnur
rúða brotnaði, þá var farið eins með hana, og jafnvel þá
þriðju. Loft og ljós var ekki svo mikil nauðsynjavara, að
það borgaði sig að kaupa rúðu — dýrum dómum — í
kaupstaðnum. Hvað varðaði um ljós og loft; aðalatriðið
fékst. Spesíum, dölum og rikisortum fjölgaði í sjóvetl-
ingunum í kistuhandraðanum, og þá var alt fengið. A
íyrra tímabilinu hlóðust saman hundruð ogTþúsundir í