Skírnir - 01.04.1907, Side 65
Darvvinskenning og framþróunarkenning. 161
Weissmanns-Lamarckskenning, rrieð því að þessar tilraunir
•eru einmitt í því fólgnar að láta umhverfið verka á lif-
andi verur um leið og nýr einstaklingur er getinn, en
■ekki alla æfi einstaklingsins.
Að því er við kemur Cuvier og jarðbyltingunum, þá
má eg minna á það, að eg hefi bent á að gera yrði grein-
armun á uppruna nýrra tegunda og dauða þeirra tegunda
:sem fvrir eru; ekkert er því til sönnunar, að þessi tvenns
konar fyrirbrigði séu ávalt eða einu sinni venjulega af
:sömu rótum runnin; enginn efi leikur á því, að lífsbar-
áttan á oft lítinn þátt í því er tegundir hverfa; kenning
Osborns um orsakirnar til þess að dinosárarnir hurfu úr
sögunni er þá alls ónóg til að sanna að þróun þeirra teg-
unda er vér finnum á því timabili sé náttúruvalinu að
þakka. Kenning Osborns er hins vegar ekki annað en
tilgáta, og sumir líffræðingar hafna henni. Um fornlífs-
fræðina segir herra Giard oss að nýir milliliðir kynnu að
finnast, ef þeirra væri gauiugæfilega leitað. Það getur
verið; en gæta ber þess, að þrátt fyrir alla þá fyrirhöfn
■er menn hafa gert sér í fjörutíu ár, þá eru milliliðirnir
þó undantekning. Yæri Darwinskenningin rétt, ættu þeir
að vera reglan. Og mér finst örðugt að láta sér nægja
.að saka fornlífsfræðingana um of mikla ást á þeim dætn-
unum sem greinileg eru. En þau atriði fósturfræðinnar,
sem herra Giard drap á (mjög hraðfara breytingar, en
síðan löng tímabil án sýnilegra breytinga) eru ein rök-
semdin til með þeim er halda fram snöggum breytingum,
ef menn fallast á Serres-lögmálið um samsvaran fóstur-
sögunnar og tegundarsögunnar, einstaklingsþróunar og
tegundarþróunar.
HOUSSAY. -— Það gleður mig að heyra heimspeking
halda fram skoðunum sem líffræðingarnir um tuttugu ár
bafa verið sammála um. Vér sjáum að framþróun hefir
átt átt sér stað i dýraríkinu. Framþróunin er því sann-
reynd; Darwinskenningin er ein af tilgátunum sem miða
að þvi að skýra hvernig þessi framþróun hafi getað átt
sér stað. Mér féll sérstaklega vel í geð það sem herra
11