Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1913, Page 6

Skírnir - 01.04.1913, Page 6
102 Um jarðarfarir, bálfarir og trána á annað lif. En því miður, eg er ekki göldróttur. Tíminn líður. Þolinmæði ykkar þrýtur. Og eg verð að láta mér nægja fáein atriði, og tek þau flest úr okkar eigin sögu: í elztu steinaldargröfum, sem fundist hafa suður í löndum, má sjá, að vel hefir verið um líkin búið; það hafa fundist vopn í gröfunum og ílát, sem virðast vera matarílát. Þetta bendir ótvírætt á tvílífistrú. Síðar, á eir- öldunum, voru líkin að vísu brend, en askan jörðuð, og vandlega um búið, og vopn og ýmsir aðrir hlutir látnir í gröfina. Það er eldgömul trú, að eldur hreinsi og þessi með- ferð á öskunni sannar, að eiraldarmenn hafa litið alt öðr- um augum á mannsösku en aðra ösku. Bálfarir héldust langt fram á járnöld, sumstaðar fram að kristni. En þó var það altítt orðið í heiðnum sið, að heygja dauða menn. Þann sið höfðu elztu forfeður okkar hér á landi. í heiðnum sið var tvílífistrúin í fullum mætti hér á landi (874—1000) eins og aDnars- staðar. Kunnáttumenn — galdramenn — gátu skift sér i tvent, þegar þeim líkaði. I Vatnsdælu segir, að Ingimund- ur gamli keypti af 3 Finnum fyrir smjör og tin að þeir skryppu til íslands frá Noregi og leituðu að hlutnum, sem Finnan hafði seitt þangað. »Nú skal oss byrgja eina sam- an í húsi, ok nefni oss engi maðr« — ok svá var gert. Ok er liðnar voru þrjár nætr kom Ingimundr til þeirra. Þeir risu þá upp ok vörpuðu fast öndinni ok mæltu: »Sems- sveinum er erfitt ok mikit starf höfum vér haft«. Þeír segja nú alla ferðasöguna. — Þetta er glögt dæmi: Andar Finnanna fara, fara hamförum, sem kallað var, til Islands, en líkamir þeirra liggja heima í móki, og það má ekki kalla á þá — svo að þeir vakni ekki, svo að and- arnir þurfi ekki að hverfa aftur frá hálfunnu verki. Þið sjáið að hamfaratrúin er lifandi eftirmynd þess vanaíega svefns, en hamför var það kallað, af því að andinn átti að geta brugðið sér í ýms líki, t. d. dýrslíki, og mætti nefna mörg dæmi til þess.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.