Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.1913, Blaðsíða 43

Skírnir - 01.04.1913, Blaðsíða 43
Ýms atriði úr lífinu i fieykjavik fyrir 40 árnm. 139 tilhaldsstúlka stakk upp á því að fara í snúning, en úr því varð samt ekki. Auðvitað voru erfisdrykkjur í stór- um stíl að eins hjá efnafólki, en þó var það föst venja, að líkmennirnir fengu góðgjörðir, þótt fátæklingar ætti í hlut. Ef lærður maður í höfðingjatölu var jarðaður, gekk líkfylgd að jarðarför lokinni aftur í kirkjuna, og var þar þá sunginn sálmurinn: Jam mæsta quiesce querela, og þá fyrst var jarðarförin á enda. Almennar skemtanir fyrir fullorðið fólk voru fáar þá. Þó voru dansleikar haldnir stöku sinnum. Heldra fólkið hélt ætíð sinar dansskemtanir í »Klúbbnum«, sem kallað- ur var, en nú er Herkastali. Salurinn þar hefir roargt séð um dagana. Þar hafa verið veitingar, bæði fyr og síðar, dansleikir, tombólur, gleðileikir haldnir í mörg ár. Þar hafa Gyðingar selt fatnað og ýmislegt skran. Þar hafa uppboð verið haldin; og loks hafa nú margar synd- ugar manneskjur, sem hafa verið staddar þar áður, með ef til vill syndsamlegu hugarfari, frelsast þar. Já, þar voru »böllin« haldin, og þó var húsið á þeim tíma, sem eg á við, sjúkrahús. »Extrema se tangunt« : niðri var alt á ferð og flugi, stígandi dansinn eftir harmoniku Brands, en uppi á loftinu stundi sjúklingurinn, og tók ef til vill síðustu andvörpin. Slíkt gæti ekki átt sér stað nú. Að ekki hafi verið mikið um almennar skemtanir þá má ráða af þvi, að frá því slíkur dansleikur hófst á kvöldin, og þangað til honum lauk kl. 4—6 morgunin eftir, var fult af fólki á gluggunum, og það þótt hlerar væru fyrir þeim. Fólkið útvegaði sér kassa og stiga og stóð á þeim, og aðrir settust svo á herðar þeirra og enn aðrir þar of- an á. Oftast voru þeir, sem inni voru, svo góðsamir að gera gluggarifuna stærri, svo að þeir að utan gætu þó haft einhverja ánægju. Sannleikans vegna verð eg að taka það fram, að hinn fegurri og betri hluti mannkyns- ins var í meiri hluta úti fyrir, og hélt líka betur út en karlþjóðin. En það var ekki einungis heldra fólkið, sem hafði gaman af að snúa sér; alþýðan hafði líka gaman af að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.