Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1913, Page 48

Skírnir - 01.04.1913, Page 48
Nútíma hugmyndir um barnseðlið. John Ruskin benti eitt sinn á, hve mannkyninu væru mislagðar hendur í framförunum. Með hverju ári sem liði kynnu menn hetur að hreinsa stál og vefa voðir; hvers konar verklegri kunnáttu miðaði áfram með risafetum. En heiminum hefði sáralítið miðað áfram nú um nokkur hundruð ár í þeirri vandasömu list að ala upp menn. Þessu er svo varið, að maðurinn hefir uáð valdi yfir náttúruöflunum og náttúrunni kringum sig, en ekki að sama skapi getað sigrað sjálfan sig. Maðurinn heflr þreif- að fyrir sér bæði út á við og inn á við, reynt að fræðast um lög heims og hugar. En með árangurinn hefir skift í tvö horn, eftir því, hve léttráðnar voru gátur tilverunn- ar. I dauðu náttúrunni voru grundvallarlögin auðfundn- ust og augljósust. Þau urðu fyrsta herfang mannsandans í þessari leit; og á sannindum þeirra byggjast nær allar verklegar framfarir. Nokkru torfengnari varð þekkingin um eðli lifandi líkama. Þess vegna er t. d. líffræðin (og læknisfræðin) yngri fræðigrein en efnafræði og eðlisfræði. En langerfið- ast viðfangsefni reynist andi mannsins. Bergtegundir, málma og lifandi líkami mátti hafa handa milli, sundra þeim, mæla þá og vega og kynnast þannig eðli þeirra. En andinn var ósýnilegur, ómælanlegur, óveganlegur. Þó starfaði hann, var alstaðar nálægur, þar sem lífsmark var; en hans varð ekki vart nema af verkunum, af spor- unum á sandinum við »tímans sjá«. Þessi spor hafa menn nú rannsakað langalengi, án þess að hafa fengið ýkjamikið að vita um þann mátt, sem

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.