Skírnir - 01.04.1913, Side 49
Nútima lmgmyndir nm barnseöliö.
145
mótaði þau á sandinn. En rannsóknirnar um þennan lítt
þekta mátt, kalla menn sálarfrseði.
En þekkingin er vald. Og því meiri sem þekkingin
er, því meira er valdið. Af þessu leiðir, að hinn fengni
þekkingarauki um áþreifanlega hluti heflr leitt af sér
margs konar hamingju, lengda mannsæfi, meiri lífsnautnir.
Hins vegar veldur ónóg þekking um eðli sálaraflsins því,
hve getulítið mannkynið er við að ráða bót á andlegum
meinum. Kynslóðir fæðast, vaxa, starfa, falla í valinn,
endurnýjast, fylgja hver í annarar spor, án þess að nokkuð
verulegt sé gert til þess, að hver einasta sál geti notið
sín til fulls. Menn vildu gjarnan stjórna þessari sístreym-
andi elfu, en þeir kunna engin tök á því. Einum finst,
að þetta ætti að gera, öðrum hitt. En á meðan ágizkanir
einar stjórna aðgerðunum, er litilla úrslita von.
Fyrir 30 árum varð stefnubreyting í sálarrannsókn-
unum. ISÍýr skóli myndaðist, með nýjum aðferðum. I stað
þess að freista að ráða gátu sálarlífsins með meira eða
minna skörpum getgátum, með sennilegum kenningum, eða
með innskoðun, þar sem andi athugarans freistar að skoða
sína. eigin mynd, reyndu fræðimenn þessir að »mæla spor-
in«, rannsaka myndbreytingar andans, eftir því sem ein-
staklingurinn þroskast, mæla getu og gildi mannsins af
verkum hans, jafnnákvæmlega og eðlisfræðingar mæla
rafmagn og segulafl. Ef þetta tækist nokkurn tíma mundi
af því leiða jafngagngerða breytingu í öllu uppeldi eins
og varð í iðnaði og samgöngum, þegar tök náðust á gufu-
afli og rafmagni. Reyndar hefir enginn þvílíkur sannleiki
fundist enn og finst líklega aldrei. Og eftir þrjátíu ára
erfiða göngu eftir nýjum vegum er allur árangurinn, að
fáein útvígi eru tekin, nokkrar gátur hálfráðnar.
Ef um fánýtt mál væri að tefla, mundu þvílíkir smá-
sigrar varla verðskulda umtal. En hér er því ekki svo
farið. Alt, sem lýtur að bættu uppeldi, kemur öllum við,
beinlínis eða óbeinlínis. Langflestir menn enda svo sína
síðustu göngu, að þeir skilja fátt eftir nema börnin, lífið
endurnýjað, — kynslóð, sem tekur við byrðum foreldr-
18