Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1913, Side 65

Skírnir - 01.04.1913, Side 65
Nútíma hugmyndir um harnseðlið. 161 8 á r a. Les kafla og man úr honum tvö atriði. Tel- ur og leggur saman verðgildi þriggja íimmeyringa og þriggja tíeyringa. Nefnir fjóra liti. Telur aftur á bak frá 20 til 0. Ber saman tvo hluti í endurminningunni. Skrifar nokkrar setningar eftir upplestri. 9. á r a. Nefnir rétt mánaðar-, vikudag og áratal. Kann dagatalið. Les kafia og man úr sex atriði. Telur upp allar peningategundir neðan við krónu. Raðar fimm öskjum eftir þyngd. 10 ára. Nefnir mánuðina. Þekkir níu peninga- tegundir. (ierir tvær setningar utan um tvö ákveðin orð. Svarar sjö skynsemisspurningum. 12 á r a. Leiðréttir málsgrein með mótsögnum. Ger- ir setningu um þrjú ákveðin orð. Finnur meir en sextán orð á þremur mínútum. Út8kýrir fáein hugræn orð. Fær meiningu í setn- ingu, sem atkvæði vanta í. 15 á r a. Endurtekur sjö tölustafi. Finnur þrjú orð, sem ríma við ákveðið orð. Endurtekur setningu tuttugu og sex atkvæða. Útskýrir mynd. Leysir sálarfræðislegt dæmi. Meðan börnin eru ung er feimnin til hindrunar allri prófun. Vegna þess verður margoft að endurtaka tilraun- irnar til að vera viss um, að hvert barn njóti sín. Dæmi þau sem hér eru sýnd eru vitaskuld ekki óbreytanleg, heldur sýnishorn, sem hafa má til hliðsjónar við að velja önnur dæmí. En þau eiga að reyna á sem flestar hliðar hinnar vaknandi skynsemi. Til að muna rétt og blanda ekki saman þremur erindum, sem barninu eru fal- in í einu, þarf töluverða f e s t u. Til að lesa og segja rétt frá efninu þarf meira en lestrarkunnáttu. Það þarf skilning. Gefum þrjú sundurlaus orð, t. d. H e k 1 a, gæfa, lækur. Þannig eru þau hvort öðru óviðkom- andi, en séu þau tengd saman, bætt í orðum inn á milli þeirra svo að vit verði í setningunni, kemur þar fram hugvit eða myndunargáfa. Dómgreind eða vönt- un dómgreindar kemur að vísu fram í því, hvernig svör- 11

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.