Skírnir - 01.01.1914, Page 16
Fyrsta utanför mín.
ie
lengi; að »vagabondera« árum saman á einum stað, þótt
við háskóla heiti, það kann að skila manni, ef vel fellur,
lítt skemdum og með embættisprófi í vasanum, en trauðla
sem sannmentuðum manni. Til þess þurfa ungir menn
að kanna fleiri stigu og vinna hylli og viðkynning mætra
manna — og k v e n n a.
Helztu glæsimenn meðal íslendinga í Höfn 1856 voru
þeir Arnljótur, Lárus Sveinbjörnsson, þeir Blöndalsbræð-
ur, Jón Thorarensen, og enn fleiri, sem segja má um, að
ýmsu ættu eftir láni að fagna. Með Arnljóti reikaði eg
lengi eitt kvöld í tunglsljósi og drakk þess á milli kaffi
og sjókólaði; undraðist eg mælsku hans, vit og hugsjónir,
fanst mér brenna í honum áhugi og vandlæti vegna lands
vors, sagði hann mér hvað gera ætti, og hvernig leysa J.
S. af hólmi þegar hann tæki að eldast; margt sagðist hon-
um vel og frjálsmannlega. Eg komst og í mikinn og góð-
an kunningsskap við Magnús Eiríksson. Hann var gæðin
tóm og guðræknin og sem helgur maður í dularklæðum
innan um veraldargosana, át og drakk þó með þeim,
eins og meistarinn forðum, ef nokkuð var til, og var sí-
glaður, og að sama skapi skemtilegur sem hann var lærð-
ur og fróður. En lítt var hann lagaður til að siða hina
ungu menn, enda mun hafa séð að viðleitni sín í þá átt
mundi lítið stoða. Og þó virtu menn dæmi hans og sjálf-
an hann og voru vinir hans. Oftast ef óla ti gengu úr
hóíi yfirgaf hann sollinn og gekk heim. Ekki talaði hann
við mig um guðfræði þann vetur, en tók mig við og við
með sér til góðra rnanna. Hann vissi að eg beið eftir
peningum er leið á veturinn, og bauð mér að borða með
sér nokkra daga. Eg þáði það, en staOurinn var ekki
glæsilegur; það var dimmur og fremur óhreinlegur kjall-
ari á Vagnmakaragötu. Sátu þar verkmenn og ræflar í
hálfmyrkri með húfur sínar og borðuðu »þorsk« og jarð-
epli, en fyrir Magnús (fína herrann) og mig var sett lítið
borð fram við dyrnar og hvítur dúkur á, en líkan mat
og hinir fengum við. Enginn mælti orð, og sá eg að
donsar og vert báru lotningu fyrir Magnúsi. Svo fekk