Skírnir - 01.01.1914, Blaðsíða 91
Ritfregnir
91
rita um það. Þetta var ekki nema sjálfsögð skylda og ab vísu
minstur vandinn. En hvar var maðurinn, sem var þessu starfi
vaxinn og fylti upp í víðu fötin Jóns Sigurðssonar? Vér íslend-
ingar höfum sjaldan mörgum mönnum á að skipa og flestir eru
bundnir við aliskonar dagleg nauösynjastörf. Satt að segja þótti
mór nokkur tvísýna á, að vér hefðum slíkan mann. Jafnvel fy'rir
íslending er ekki hlaupið að rækilegri rannsókn á þessu gamla flókna
deilumáli. Til þess þarf meðal annars mikla söguþekkingu og
glögga lögfræðismentun.
1 þetta sinn reyndist það svo, að margur er ríkari en hann
hyggur. Próf. Einari Arnórssyni var falið þetta verk og
sú hefir orðið raun á, að betri mann og Dönum óþarfari gátum
vér ekki fengið. Á stuttum tíma hefir hann ritað tvær langar og
ítarlegar ritgerðir í Andvara um róttarstöðu vora, og nú að lokum
hina miklu bók, sem fyr er talin: Réttarstöðu íslands,
nálega 400 bls. að stærð.
Það er ekki tilgangur minn að lýsa nákvæmlega efni bókar
þessarar eða gagnrýna það. Það verður ekki gert í stuttu máli og
eg er því ekki vaxinn. Er það skemst af efni bókarinnar að segja,
að hún rekur skipulega og skemtilega alla stjórnarskipun vora og
róttarstöðu, frá landnámsöld til 1912, og er frásögn höfundarins
hvervetna bygð á sjálfstæðri ransókn allra heimildarrita. Hér er
gerð ítarlegri grein fyrir landsréttindum vorum en uokkru sinni
fyr, því bæði ná rit Jótis Sigurðssonar skemra og fara fljótar yfir
söguna. Höf. heldur sér vel við efnið, segir söguna latlaust og
blátt áfram, jafnframt því sem vísað er til fjölda heimildarrita að
fornu og nýju. Svo má heita, að það sé unun að lesa hvern kafla
í bók þessari og óvíða finst mór nokkur ástæða til þess að ve
fengja ályktanir höf. Að sjálfsögðu kemur próf. B e r 1 i n viða við
söguna, og er ekki laust við, að margar fullyrðingar hans verði
léttar á metuuum, en hitt litlu betra, að víða berast að honum
böndin með það, að fara ekki allskostar ráðvandlega með heimildir
sinar og sanna t. d. mál sitt með röngum tilvitnunum eða með
því að slíta orð úr samhengi. Er það víst, að málið hallast mjög
á Berlin sem stendur og ólíklegt að hann rétti það nokkru sinni,
þó hann sjálfsagt reyni að klóra í bakkann.
En hversu liafa skoðanir Jóns Sigurðssonar staðist þessa nýju
rannsókn eftir svo langan tíma? Það er sagt að í eldinum prófist
gullið og þær hafa í öllum aðalatriðum reynsc ósvikið gull. Einar
Arnóisson og Jón Sigurðsson komast að sömu niðurstöðu: Island