Skírnir - 01.01.1914, Blaðsíða 67
Hvar er Lögberg hið forna?
67
vel hugsanlegt að orðin á virkið fyrir búð
s í n a hafi myndast hjá seinni mönnum, (ef til vill þegar
sagan hefir verið sögð bókarlaust), svo frásögnin yrði
áheyrilegri Það hefir að líkindum eitthvað þótt vanta
við orðin: »Þá gekk Sturla fram«, og þá lá beint við að
bæta þessu við, því margir hafa haldið það á seinni tím-
um, að flestar höfðingja búðir hafi verið virki. Hafi
Sturla verið i Hlaðbúð, sem likur eru til, þá er vafasamt
hvort nokkurt virki hafi verið um búð hans, en það, sem
þeir sumir ætla, að Hlaðbúð hafi verið búð Snorra goða,
mun verða örðugt að sanna.
Það er ekki sjáanlegt að þessi fyrsti staður í Sturl-
ungu s a n n i nokkuð um það, að Lögberg hafi verið fyrir
vestan öxará. Hann virðist vera svo vafasamur og óviss
að ekkert sé hægt á honum að byggja, og það jafnvel þó
orðin »á virkið fyrir búð sína« væru tekin gild og góð.
Þá er eftir að sanna það, að Sturla hafi þá haft búð fyrir
vestan ána. Af sögunum sézt, að þeir skiftu um búðir
eftir atvikum. Það eru likur til að Sturla hafi verið í
Hlaðbúð og það má geta sér það til, en tilgátur eru ekki
óskeikular sannanir.
Annar staður í Sturlungu, sem á að sanna þetta saina,
að Lögberg hafi verið fyrir vestan á, er í Sturlungu 4. þ. 21. k.
Þess er þar getið, að Snorri Sturluson átti í skærum við
Magnús góða son Guðmundar gríss, og mun Snorri ekki hafa
árætt að vera langt frá bræðrum sínum um þingtímann, en
þeir voru fyrir vestan ána, lét hann því byggja búð handa
sér fyrir vestan á. Um það fer Sturlunga þessum orðum:
»Snorri lét giöra búd þá upp frá lögréttu er hann kallaði
Grýtu«. Þess ber að geta, að hér, sem víðar, ber hand-
ritunum ekki saman, eldri handrit hafa Lögbergi fyrir
Lögréttu og Grílu fyrir Grýtu; en á þessum stað telur
Olsen handrit síra Eyjólfs á Völlum með hinum »lakari
handritum«, og segir að Guðbrandur Vigfússon hafi »af-
lagað« og farið »herfilega« með textann, með því að hafa
Lögréttu og Grýtu m. m. í útgáfu sinni af Sturl-
ungu. Hér finst mér ekki Guðbrandur vera ámælisverð-
5*