Skírnir - 01.01.1914, Blaðsíða 36
36
Hvað er dauðinn ?
Á þessu sviði hafa, eins og eðlilegt er, læknar og
prestar skift hlutverkinu milli sín. Kirkjan hefir tekið að
sér ástandið eftir dauðann og eru kenningar hennar um
það öllum svo kunnar, að óþarfi er að skýra frá þeim hér.
Eitthvert merkasta ritið um andlátið sjálft hefir samið
frægur danskur læknir, prófessor Oscar Block. Er það
stóreflis rit og aðallega um ástand og tilfinningar þess er
skilur við. Færir Block mýmörg dæmi því til sönnunar,
að venjulega sé dauðinn sjálfur alveg þjáningalaus, og sé
því ekkert að óttast hvað það snertir.
Þess eru og jafnvel dæmi að einkum gamalmennum
hefir fundist dauðinn alt annað en ægilegur. Frakknesk-
ur rithöfundur Brillot-Savarin segir frá því, að frændkona
hans, 93 ára að aldri, sagði það við hann síðast orða, áð-
ur en hún skildi við: »Ef þú lifir það að komast á minn
aldur, drengur minn, þá muntu komast að raun um, að dauð-
inn getur orðið oss jafmikil nauðsyn og svefninn«. Og
þegar frakkneski rithöfundurinn Fontenelle var aðfram
kominn, var hann spurður um hvernig honum liði: »Eg
finn ekkert til, en mér er erfitt að halda mér lifandi«,
svaraði hann. Kétt eins og maður segir, þegar maður á
bágt með að verjast svefni.
Langt er síðan heimspekingar fóru að taka fram í
tyrir prestunum og skapa sér hugmyndir um ástandið eft-
ir dauðann, er eigi væri á kirkjulegum grundvelli bygðar,
en styddust við þá þekkingu er menn hefðu öðlast á heim-
um anda og efnis. Yrði of langt að skýra frá því öllu
hér, enda ;hafa margar þær hugmyndir lítilli útbreiðslu
náð. —
Einhver merkasta bókin, sem nýlega hefir verið rituð
um þetta efni, mun vera La Mort (Dauðinn) eftir M. Maeter-
linck. Bókin er aðallega heimspekilegar hugleiðingar um
ástand vort eftir dauðann. Vel væri hún þess verð að
komast heil og óskift á íslenzka tungu, eins og fleira eftir
sama höfund, því eigi er unt í stuttu máli að skýra frá
öllum þeim rökum, er hann færir máli sínu til stuðnings,
og því síður að gefa neina hugmynd um ritsnild höfund-