Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1914, Blaðsíða 90

Skírnir - 01.01.1914, Blaðsíða 90
-90 Ritfregnir því til þess að geta svarað úr flokki í þessu máli var óhjákvæmi- legt að kunna vel íslenzku og vita góð deili á sögu vorri, en auk þess ærið torsótt að elta uppi öll skjöl og skilríki, er að þessu lutu. Það er í raun og veru engin furða, þó Dönum veitti erfitt að svara J. S. Þeir stóðu svo miklu ver að vfgi. í þetta sinn vildi Dönum það happ til, að þeir áttu þann grjótpál og dugnaðarmann, sem lærði vel íslenzku og pældi gegn- um flest, er að málinu laut. Sá maður var, sem kunnugt er, próf. dr. jur. Knud Berlin. Hann tók á móti millilandanefndar- mönnum vorum 1908 með all langri ritgerð um réttarstöðu lands- ins og auk þess annari um gamla sáttmála og gildi hans. Síðan hefir hann verið sístarfandi, skrifað fjölda margt um þetta mál, komið auk þess aðalriti sínu út á þýzku. Það er í styztu máli frá kenningum B e r 1 í n s að segja, að gamli sáttmáli er eftir þeim hreint og beint innlimunarskjal, stöðulögin góð og gild. Landið hefir þá aldrei annað verið frá 1262 en ósjálfstæður ríkishluti, fyrst af Noregi, en síðan af Danmörku, og öll kenning Jóns Sig- urðssonar reykur einn og hin fráleitasta málafærsla. Nefndarmenn vorir í millilandanefndiuni mótmæltu þessum kenningum, og próf. L. H. Bjarnason ritaði þá bráðabyrgða- svar gegn þeim. Próf. B. M. Ólsen skrifaði ritgerðir sínar um upphaf konungsvalds á íslandi í Andv. 1908 og 1909, en dr. Jón Þorkelsson og próf. E. Arnórsson gáfu út Bíkisréttindi Islands 1908. Þá var og málið að nokkru rakið í nefndaráliti meiri hlötans í sambandsmálinu á þingi 1909. Við þetta sat fyrst um sinn, og var þó Berlín naumast svarað sem skyldi. Það þurfti að rannsaka alt málið frá rótum, athuga á ný alla röksemdafærslu J. Sig. og ekki síður allar breytingar, sem orðið hafa eftir að hann féll frá, og það þess heldur, sem B e r 1 i n færðist sífelt í aukana, hrósaði happi yfir því, að nú hefðu dönsk vísindi hrakið allar kenningar J. S., en brá jafnframt Einari Arnórssyni og Jóni Þorkelssyni um óheiðvirða málafærslu í ritum þeirra. Það var þjóðarnauðsyn, að þetta verk væri unnið. Sómi vor lá við, að vér hreinsuðum fyrir vorum dyrum. Þá var það heldur ekki þýðingarlaust, að íslendingum hefir ætíð verið það mikill sið- ferðislegur stuðningur í öllu sambandsþrefinu, að þeir hat'a þózt byggj a á góðuin og gömlum réttargrundvelli. Ef fótum var kipt undan þessari sannfæringu, hlaut það að hafa mikil áhrif á afstöðu .allrar alþýðu í sjálfstæðismáli voru. Þetta sá þingið 1909 og veitti fé til þess að rannsaka málið og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.