Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1914, Blaðsíða 17

Skírnir - 01.01.1914, Blaðsíða 17
Fyrsta utanfijr mín. 17 eg peninga og launaði »frater« góðviljann. Eitt sinn var eg við kvöldborð með honum hjá Iiúsavíkur-.I ohnsen, er bjó úti á Kristíánshöfn. Frú Hildur kona hans, hið mesta gæzkublóð, bar duglega á borð fyrir Magnús og sagði: »Það vildi eg að yður félli nú þessi matur, því þér kom- ið alt of sjaldan«. Sýndist mér og »frater« borða ámæl- islaust og var hinn hreifasti. Hildur var hin ágætasta kona, og lærði eg hana vel að þekkja mörgum árum síð- ar; maður hcnnnr tók okkur heldur fálega, var haltur af gigt og skókreppu og dæsti mjög meðan dóttir hans Jenny, þá hálfvaxin, var að toga af honum stígvélin. Sú stúlka giftist hefðarprestinum Jantzen í Gentofte og varð móðir Jantzens, er um aldamótin var einn í Norðurljósanefnd- inni með Adam Paulsen, þeirri er sat hér á Akureyri. Edvald læknir var sonur þeirra hjóna, er 15 árum seinna ferðaðist með mér yfir Noreg og batt vinfengi við mig upp frá því. Eg tók þátt í fimleikaæfingum með íslenzkum stúdent- um í Austurgötu; var kennari okkar islenzkur í móður- ætt og hét Magnús Johnsen. Þar sýndum við glímur, og dáðist kennarinn að þeirri íþrótt, var þó enginn okkar vel fær Þar reyndi eg mig við Arnljót, Guðbrand Vig- fússon, Steingrím Th. og fleiri, og var Arnljótur einna röskvastur, Steingr. var og vel hnellinn, en eg dró mig heldur í hlé, og naut þess þó síðar hjá Steenberg okkar í skóla, að eg hafði framast á Austurgötu í skylmingum. Enn fleiri landa minna er mér skylt að geta, þótt ekki væru stúdentar. Til Seidelins kennara gengu tveir aðrir Vestfirðingar og hétu báðir Ólafar, annar sonur Matthíasar Ásgeirssonar prófasts í Holti (d. 1835), en hinn var Ólafsson. Þeir voru siðsamir piltar, en litlir náms- menn. Hinn síðarnefndi var þó hið mesta reikningshöfuð, sem eg hefi þekt, gat leyst hvert dæmi nálega á svip- stundu með höfuðreikningi, en dönskuna nam hann bæði seint og illa. Kennarinn var kryplingur og smámæltur, en spéhræddur í meira lagi, og varð okkur oft að grípa fyrir munninn, er hann og »Ólsen« áttust við. »De skal 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.