Skírnir - 01.01.1914, Blaðsíða 107
íslanil 1913.
107
vík, sem á aS hafa afl til þess að senda skeyti til útlanda. Mun
nú bráðlega verða byrjað á byggingu þeirrar stoðvar.
Þetta vor var byrjað að vinna að hafnargerðinni í. Keykjavik
og er í árslokin kominn garður frá landi og út í Effersey. Grjót
til byggingarinnar er flutt á járnbraut frá Oskjuhlíð.
Helztu brúargerðir á árinu eru á þessum ám: Þverá í Borg-
arfirði, Fremri Laxá í Húriav.sýslu, Bangá í Hróarstungu, Munka
þverá, Djúpadalsá, Skjóldalsá og Finnastaðaá í Eyjafirði, Kaldá í
Jökulsárhlíð, A.usturá í Sökkólfsdal, Hverfisfljóti og Brunná í V.-
Skaftafellssýslu. Flestar eru brýrnar steinsteypubrýr. Járnbrýr
eru á Hverfisfljóti og Brunná.
Nýir vitar hafa verið gerðir á Bjargtöngum vestra, á Kálfs-
hamarsvík við Húnaflóa, á Skagatá við Skagafjörð og á Flatey á
Skjálfanda. Endurreistur hefir verið viti á Brirnnesi við Seyðisfjörð.
I byrjun ársins var hér staddur maður frá Þýzkalandi í þeim
erindagerðum, að rannsaka hraunin í kringum Hafnarfjörð, hvort
þau væru rik af áburðarefnum, og gerði ráð fyrir, ef svo reyndíst,
að koma þar upp verksmiðju til þess að vinna áburð úr hraunun-
um Fréttirnar segja, að fyrirtæki þetta sé komið vel á veg ytra,
en framkvæmdir eru engar byrjaðar hór enn.
Strandmannaskýli var í sumar bygt í Mávabót sunnanlands
og kostað til þess af útlendum þjóðum, mest Englendingum. Sjó-
merki voru einnig reist í grend. Tvö skýli önnur fyrir strand-
menn eru þar á söudunum, bygð af D. Thomsen konsúl Þjóðverja.
Innsigling til Gilsfjarðar var í sumar mæld af dönskum herforingj-
um, er fengnir voru til þess fyrir fó, er alþingi veitti.
Fyrsta fiskiþingið kom saman í júlí í sumar, og er fyrirkomu-
lag þess iíkt og búnaðarþingsins. Það á að ræða fiskiveiðamál
landsins og koma saman annaðhvort ár. Fnlltrúar til þingsins eru
kosnir af deildum fiskifélags Islands til og frá um land, og voru
þær, er fyista þingið kom saman, orðnar 12 að tölu, en félags-
menn Fiskifélagsins alls 542. Stofnun Fiskifélags íslands er fyrsta
tilraunin til þess að koma á almennum samtökum meðal sjómanna-
stéttarinnar um alt land, líkum þeim, sem lengi hafa átt sér stað
meðal landbændastóttarinnar.
Sláturfélag Suðurlands hefir á þessu ari komið upp mjög
myndarlegu vélafrystihúsi 1 Eeykjavík. Er útbúnaður allur þar
svo fullkomiun sem bezt má verða, og var frystihúsið fullgert fyrir
sláturtíð í haust.
Raflýsing komst á í haust í Seyðisfjarðarkaupstað, og er hann