Skírnir - 01.01.1916, Side 3
Skírnir.
Matthias áttræður.
£
Jón Loftsson stýrði næstum öllu landinu og Snorri Sturluson
ólst upp. Varð hann nú að stunda búskap, og er mælt,
að honum hafi þar vel búnast. En útsækinn var hann
enn. Hann brá sér utan 1885. Hann flyzt búferlum til
Akureyrar 1887 og hefir síðan átt þar heima. Hann fær
lausn frá prestskap árið 1900 og 2000 kr. eftirlaun. Hann
hefir ekki hætt utanferðum sínum, þótt aldur hafi færst
yfir hann. Hvað eftir annað hefir hann skroppið út fyrir
hafið, og 1893 fór hann til Vesturheims, á Chicagosýning-
una miklu. Hefir víst enginn íslenzkur prestur farið líkt
því eins oft utan og hann. Hefir hann þó oftast verið
félítill. Sýna þessar utanferðir sérkennileik hans. Svipar
honum í þessu til elzta þjóðskálds vors, Egils Skallagríms-
sonar, sem eirði ekki lengi heima í einu. Forfeður vorir
skildu ekki þessa útþrá Egils og eignuðu hana fjölkyngi
Gunnhildar kongamóður. Vér vitum, að hún er göfugs
eðlis, Braga ættar, og fylgja margra andans manna.
Þá er talin eru svokölluð trúnaðarstörf og stöður
hversdagsmanna, getið hjúskapar þeirra og barna, er lokið
æfisögu þeirra. Þá byrjar sérsaga afreksmanna og afar-
menna. Ef rent er augum yfir verk og æfikjör síra
Matthíasar, sést óðara, að svo mikið liggur eftir hann, að
það skipar honum á bekk með afburðamönnum þjóðar
vorrar. Hann lýkur ekki námi fyr en um þrítugt, verður
síðan að hafa bókmentastörf og andlegar iðkanir í hjá-
verkum, þar til hann er hálfsjötugur, gegnir erfiðum presta-
köllum, fæst við búskap og kenslu, á við þröngvan fjár-
hag og mikla ómegð að stríða og verður oft að eyða orku
í að sjá sér þar úrræði og útvegi. Alt fyrir þetta er hann
ljóðfrjóasta þjóðskáld vort. Ljóðmæli hans, þýdd og frum-
ort, eru 5 bindi, en ekki alllítið hefir bæzt við, síðan
þau komu út. En þau eru ekki nema nokkur hluti verka
hans. Hann hefir þýtt nokkur ágætustu skáldrit heimsins
á vora fálesnu tungu. Hann hefir glímt við skáldtröllin
brezku, Byron og Shakespeare, þýtt »Manfred« með hinni
mestu snild, »Othello<, »Iiomeo og Júlíu«, »Hamlet« og
»Macbeth«. Auk þess hefir hann þýtt »Brand« Ibsens og
l*