Skírnir - 01.01.1916, Blaðsíða 45
•Skirnir.
Röntgensgeislar.
45
mesta skamt af R-geislum, sem bjóða má hverjum manni
án þess hann saki.
Menn kunna nú að spyrja, hvernig nota megi til
lækninga þessa voða-geisla, sem brenna sundur hörund
manna og jafnvel valda dauða þeirra; í fljótu bragði virð-
ist einkennilegt, að slíkt geti orðið sjúklingum að liði.
Vandinn er að finna hinn rétta geisla'skamt, sem hefir
sín áhrif á sjúkdóma þá, sem geislunum er ætlað að lækna,
án þess að vinna líkamanum tjón á nokkurn hátt. En
veikt hold, t. d. krabbamein, eyðist miklu fyr af R-geisl-
unum heldur en heilbrigða holdið, sem næst er meininu,
og hér má því með geislunum koma ár sinni vel fyrir
borð. R-læknarnir ganga á lagið og stilla svo til, að
geislarnir verki hæfilega lengi á meinsemd þá, sem þeim
er ætlað að eyða, en þó ekki svo lengi að heilbrigðum
líffærum, sem næst eru meininu, stafi hætta af.
Húðsjúkdómar. Aðallega eru það húðsjúkdómar
og meinsemdir, sem læknaðir eru með R-geislum. Eg ætla
að nefna fáeina algengustu sjúkdómana, sem dæmi. E x-
em getur verið mjög þrálátt; það læknast oft með geisl-
unum, jafnvel þótt sjúklingarnir hafi verið verið veikir í
mörg ár og reynt ótal smyrsli. K ] á ð i er einn hinn
þrálátasti og erfiðasti sjúkdómur; eg á ekki við kláða,
sem stafar af kláðamaurum; en það eru til sjúklingar,
sem eru viðþolslausir af kláða án þess að hægt sé að
finna orsök til þess. Mjög oft er það kláði við endaþarm-
inn eða fæðingarstaðinn, sem um er að ræða; þetta er
ilt ástand og oftast versnar um allan helming þegar þess-
ir veslings sjúklingar taka á sig náðir og leggjast til
svefns, vegna rúmhitans. R-geislar eru eina lækningin,
sem dugir við þessum óþægilega kvilla.
Margir munu kannast við tjöruleppinn, sem hafður
var við geitnakollana í gamla daga. Eina ráðið til þess
að lækna g e i t u r er að ná rækilega í burtu, meb rót-
um, höfuðhárunum á þeim blettum, sem geiturnar eru, og
hafa menn lengi vitað það; en þetta er ekkert áhlaupa-
verk. Ef okkar höfuðhár væru talin, sæist bezt hvílík