Skírnir - 01.01.1916, Blaðsíða 28
28 Lesturinn og sálarfræðin. Skírnir.-
Eu hvernig er nú varið meðvitund lesarans um efnið'
sem liann les um? Yflr það hafa tilraunir seinni ára
brugðið nokkru ljósi. Margt er þó enn óljóst íþessuefni,.
cnda má ekki búast við að öllum sé eins varið. Méðvit-
und lesarans breytist og með hverju augnabliki, eftir því
hvað hann les og hvernig hann er fyrirkallaður.
Þegar menn reyna að lesa einhverja alkunna setn-
ingu eða orðtæki í snarsjánni, ber það við, að þeir skilja
undir eins hugsunina, án þess að hugmyndirnar sem
svara til orðanna hvers fyrir sig komi fram í hugann.
Oft geta menn þá eftir á veitt því eftirtekt, hvernig þess-
ar hugmyndir koma fram hver af annari. Svipuð verður
i'eynslan er vér lesum hart um eitthvert auðvelt efni.
Vér fáum þá oft engar sérstakar hugmyndir, og vit-
um þó upp á hár hvað meint er. Það er þvi mikill mis-
skilningur, að halda að hugur lesarans sé eins konar óslit-
in kvikmyndasýning.
Huey gerði tilraunir um þetta með þeim hætti, að
liann tók tvær greinar, sína um hvort efnið, klipti orð
fyrir orð úr þeim, límdi sitt orðið á hvert spjaldið, rugl-
aði þeim og sýndi síðan hvert orð 4 sekúndur. Atti les-
arinn að þeim liðnum svo að segja hvaða hugmyndir orð-
ið hefði vakið.
Síðar voru sömu greinar sýndar þannig, að línurnar
voru límdar saman, hver aftan i aðra i réttri röð, og les-
arinn svo látimi lesa áfram eitt orð eða setningu i senn á 4
sekúndum og gera síðan sömu grein og um einstöku orðin.
Slíkum tilraunum má og haga þannig, að einstök orð
eða setningar eru lesnar upp og áheyrandinn látinn segja
samstundis hvað honum kemur i hug.
Að skýra frá þessum tilraunum í einstökum atriðum
yrði of langt mál, enda geta þeir sem vilja gert þær
sjálflr. Býst eg við að margan muni þá furða, hve litið
af ákveðnum hugmyndum ýms einstök orð og jafnvel
heilar setningar kalla fram í hugann, og það eins þegar
vér skiljum vel. Þráður hugsunarinnar er oft spunninn
úr efni sem mjög erfitt er að handsama og lýsa í orðum.-