Skírnir - 01.01.1916, Side 104
104
Island 1915.
Skírnir-
upsa í aflanum, en það bætti um, að hann var nú einnig í háu verði.
í júlíbyrjun fóru flest botnvörpuskipin á síldveiðar við Norðurland,.
og var það þó eigi glæsilegt í upphafi, þar sem alt var fult af ís
fram um miðjan júlí. En svo fór, að síldaraflinn varð mikill hjá
öllum fjölda skipanna og hjá einstöku skipum afburða góður. Til-
kostnaðurinn við þessa veiði var nú tilfinnanlega hærri en nokkru
sinni áður, en síldin altaf í háu verði, og fór þó verðið mjög hækk-
andi, er á leið, svo að síld hefir aldrei komist í annað eins verð
og nú, eða neitt nálægt því. Árangurinn af síldveiðinni varð því
sérstaklega góður, og er það í fyrsta sinn, að kunnugra sögn, sem
íslenzku botnvörpuskipin hafa í heild sinni grætt verulega á þeirri
veiði. Skipin komu heim frá síldveiðunum í lok september og
hættu þá flestöll veiðum um hríð og fóru í vetrarlægi. En þau.
fáu skip, sem þá fóru út á þorskveiðar og seldu afla sinn í Eng-
landi, munu hafa grætt á því. í byrjun desember fóru flest skipin
út aftur og veiddu í salt. Flest af þeim aðeins eina ferð, og varð
aflinn fremur lítill vegna ógæfta þá við Vesturland. En í miðjum
desember breyttu öll þessi skip til og fóru að afla í ís. Fengu.
þau þá mjög fljóttekinn afla og seldu hann í Englandi fyrir hærra
verð en nokkru sinni hefir áður þekst. Árið hefir yfirleitt verið
mjög gott fyrir botnvörpungaútvegiun, enda þótt tillit sé tekið tii
þess, að tilkostnaður við hann er miklu meiri nú en nokkru sinnf
áður. Á árinu hafa bæzt við 4 nýir botnvörpungar, 2 í Reykja-
vík og 2 í Hafnarfirði; einn er í smíðum og kaup ráðgerð á þrem-
ur þar fyrir utan. — Þilskipin, sem út hefir verið haldið frá
Suðurlandi, eru lítið eitt færri ea næsta ár á undan, en afli þil—
skipanna yfirleitt mun vera þriðjungi meiri nú en í fyrra. Vélbáta-
aflinn hefir og verið mjög mikill kringum alt land. Ný hreyfing
hefir komið upp á árinu í vólbátaútgerðinni. Menn eru að fá sór.
miklu stærri báta en áður og þykir það gefast betur. Þessa stærri
vólbáta geta menn einnig notað til síldveiða. Þeir eru 30—40 tonn,
með 50—60 h.a. vólum. Þeir eru smíðaðir ýmist í Noregi eða Dan-
mörku og eiga ísfirðingar og Eyfirðingar þegar nokkra, en margir
eru í smíðum, þar á meðal, að sögn, 8—10 fyrir Reykvíkinga.
í atvinnurekstri og verzlun er árið 1915 mesta veltiár, sem
yfir ísland hefir komið, bæði til lands og sjávar. Verð á útlend—
um vörum hefir reyndar verið miklu hærra en að undanförnu. En
verðhækkunin á innlendu vörunum hefir þó verið miklu meiri en
því nemur. Allir framleiðendur, til lands og sjávar, hafa stórgrætt*