Gangleri - 01.01.1870, Síða 43

Gangleri - 01.01.1870, Síða 43
43 þekktu það, enn gjöra. En það er svo með fleira hjerna á veslings eynni okkar“. „Vínið erágætt“, sagði greifinn; „jeg skal hugsa eptir að kaupa nokkuð af því, áður enn jeg fer hcim. Er það dýrt“ ? ,,Fáa skildinga flask- an“. „Hvað segið þjer ; fáa skildinga flaskan“ ? sagði greifinn og helti óspart á staupið, „Jeg vil að eins leyfa mjer að benda yður á einn galla, sem það hefir“, mælti ábótinn ; „það er fjarska áfengt“. „IJað áfengt“ ! sagði greifinn; „jeg treysti mjer til að drekka pott af því eins og ekki neitt“. „Þá ætla jeg að biðja yður að láta, eins og þjer væruð heima hjá yður, en hugsa að eins eptir því, að fleiri vín-tegundir er hjer að velja um, enn Marsala- vínið eitt“. Greifinn át nú og drakk af beztu lyst, og munk- arnir vildu sýna, að þeir væru honum jafn-snjallir. í fyrstu var þegjandalegt við borðið, æn ekki leið á löngur áður enn menn fóru að tala sainan, fyrst í hálfum hljóð- um, hver við sessunaut sinn, en síðan hærra og hærra, eptir því sem vínið sveif á þá. Að lokunum varð svo inikil háreysti, að ekki hcyrðist mælt mál. Greifinn var að vísu ekki sterkur í ítölskunni, en þó þóttist hann skilja, að mikið var talað um rán og gripdeildir ; sagðar sögur af því, hversu klaustur hefðu verið brennd og rænd, en nunnur hafðar á burt; lögregiumenn hengdir, og þar fram eptir götunum. Ekki þótti greifanum það neitt kynlegt; því að það var ckki ólíklegt, að munkar þessir hefðu opt sjeð aðfarir stigamanna þar á eynni. Auk Marsala- vínsins voru ýinsar aðrar víntegundir drukknar, og þótt greifinn væri hraustur, fór honura samt á endanum að daprast sjónin, og veíjast tunga um tönn. Þessu næst

x

Gangleri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.