Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Side 38
Smávegis.
Eftir
Sigurð Vigfússon.
I.
Gullkaleikrinn á Hólum-
A siðasta tímabilinu fyrir siðaskiptin var ríki biskupanna orð-
ið einna mest hér á landi, enn konungsvaldsins gætti þá minna
enn síðar varð; enn sumir biskuparnir vóru og stórmenni mikil, og
auðguðu mjög biskupsstólana með stóreignum, bæði í föstu og
lausu, og kirkjurnar með dýrgripum og skrauti. Gottskálk biskup
Nikulásson á Hólum, 1498—1520, sendi utan Jón prest Arason til
Noregs með „IX mörkum gulls, er hann lét gjöra gullkaleikinn af,
er Danir tóku eptir Jón biskup Arason. Átti þá Hólakirkja haf-
skip, er dró nær LXX lestum . . . . og auðgaði hann Hólakirkju
um XXI hundrað hundraða í fasteign“, Espól. Árb. II. D. bls. 42;
21 hundrað hundraða verðr um 252 þúsund krónur. J>etta
gerði nú þessi eini biskup. Enn þessi dýrð fór bráðum af; eptir
siðabótina vóru kostagripir teknir — að minsta kosti frá dómkirkj-
unum — og fluttir út úr landinu; um fasteignirnar fór sem kunn-
ugt er.
Hirðstjóra annáll bls. 696 segir: „J>eir (Danir) tóku með sér gull-
kaleikinn stóra, er Gottskálk biskup til lagði, og fœrðu hann kóng-
inum1. Fækkaði þá um fleiri dýrgripi í Hólakirkju í gulli og silfri“,
sbr. og Espól. Árb. IV. D. bls. 82, og bls. 83 segir hann: „Af-
hentu þeir kongi mörg dýrindi, gullkaleikinn oc ærid gull oc
silfr, bagla silfrslegna af rostungstönnum oc margt annat“.
1) Ég kom að Hólum í tíð síra Benidikts prófasts Vigfússonar, og man
ég það, að hann sagði mér, að á Hólum hefðu gullkaleikarnir verið tveir,
og að annar hefði vegið 11 merkr; enn ekki hefi ég heyrt hans annar-
staðar getið, eða hvað af honum hafi orðið.