Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Síða 34
34
sjónar hvort árið, en alþingi 1899 útvegaði safninu húsnæði í
hinu nýreista Landsbankahúsi og veitti 2000 kr. til húsaleigu og
hita þar hvort árið 1900 og 1901, og til ílutnings safnsins í þessi
nýju húsakynni voru veittar 800 kr.; ennfremur voru veittar 200 kr.
til umsjónar, umfram þær 400 kr., sem áður höfðu verið veittar,for-
stöðumanni til aðstoðar við umsjónina1).
Safnið var fiutt í hin nýju húsakynni haustið 1899, var lokað vegna
flutnings og niðurröðunar frá 26. okt. það ár til 21. rnarz 1900, en
forstöðumaður taldi þó ekki lokið starfa sínum fyr en 27. marz 1902;
til þess tíma entust hinar veittu 800 kr., en ekki taldi þá forstöðu-
maðurinn verkinu þó enn að fullu lokið. Q-jörði hann grein fyrir
starfi sínu í bréfi til stiftsyfirvaldanna 11. apríl 1902, kvaðst hafa
farið yfir allar skýrslur safnsins og fiokkað niður á pappírnum eftir
þeim alla muni safnsins eftir tegundum og svo lagt þessa skiftingu,
— að svo miklu leyti sem húsakynnin leyfðu —, til grundvallar og
notað hana við röðun safnsins, ennfremur tölumerkt hirzlur safnsins
og sett þau merki inn á efnisskrána við hlutina; en því miður ent-
ist eigi fjárveitingin til þess að ljúka við þetta verk né efnisskrár-
yfirlitið sjálft, sem heldur ekki var haldið áfram jafnframt og við
bættist á eftirfylgjandi árum. Húsnæði það sem safnið fékk í Lands-
bankahúsinu kvað forstöðumaðurinn óhentugt bæði að því er snerti
ljós og herbergjaskipun og ónógt eftir fá ár, ef safnið yxi nokkurn
veginn að sama skapi eftirleiðis sem þangað til. — Á alþingi 1901
urðu nokkrar umræður um þóknunina fyrir umsjónina með safninu,
einkum vegna 200 kr. hækkunarinnar á alþinginu næsta á undan8),
en sat þó alt við sama á næstu fjárhagstímabilum (1902—3 og 1904
—5). Alþingi 1905 hækkaði umsjónarþóknunina enn um 120 kr. —
upp i 720 kr. fyrir fjárhagstimabilið 1906—7. Safnið var þessi árin
í Landsbankahúsinu og bankanum greiddar árlega 2000 kr. i húsa-
leigu fyrir húsnæði safnsins.
Meðan safnið var undir umsjón Jóns Jakobssonar bættust því
allmargir góðir gripir og sýnir eftirfylgjandi skýrsla vöxt safnsins
á þessum 11 árum:
‘) Alþ.tið. 1899 A, bls. 321, B, bls. 462-63, C, bls. 679.
*) Alþ.tíð. 1907 B, 1492, 1504, 1526 og 1596.
;