Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Page 35
35
Gripir fengnir ókeypis Keyptir gripir Sam- tals Tala gripa við árslok
1897 26 46 72 4433
1898 27 76 103 4536
1899 36 101 137 4673
1900 29 78 107 4780
1901 21 92 113 4893
1902 48 79 127 5020
1903 11 48 59 5079
1904 25 70 95 5174
1905 23 136 159 5333
1906 16 49 65 5398
1907 19 44 63 5461
281 819 1100
Má það heita furðu merkilegt, að gripatala safnsins skyldi á
þessum 11 árum aukast um nákvæmlega 11 hundruð.
Auk þessa gáfu þau Jón Vídalín konsúll og frú hans hið afar-
merka og dýrmæta safn sitt af Islenzkum forngripum árið 1907, sbr.
Árb. 1908, bls. 56—58; er það hin mesta gjöf, er safninu nokkru
„ sinni hefir hlotnast. Ennfremur gáfu brœðumir Lund árið 1906
myntasöfn sin, um 2800 myntir samtals, sbr. Árb. 1907, bls. 48—9,
og Árb. 1908, bls. 56.
Yfirlit yfir þá muni, er safninu bættust árlega á þessum 11 ár-
um birtist jafnan í Árb. Fornl.fél. (1898—1908), og mun því eigi þörf
á að geta hér helztu gripanna, er við bættust.
Á þessum árum var safnið sýnt svo sem fyr tvisvar á viku,
1 stund í senn, alt árið fyrstu 2 árin, en 1899—1905 var það sýnt
þrisvar í viku (á mánud., miðv.d. og laugard., kl. 11—12) frá 1. mai
til 30. sept., og síðustu tvö árin var það samkv. fyrirmælum í fjár-
lögum alþingis 1905 sýnt fjórum sinnum á viku (1 stund í senn) á
tímabilinu 15. júní til 15. sept. og skyldi seldur aðgangur að safn-
inu annan hvorn dag á sama tímabili; en þar eð brátt kom í ljós,
að þetta fyrirkomulag kom ekki að tilætluðum notum, var því breytt
aftur, svo sem síðar skal tekið frara. — Skýrslan hér síðar sýnir
i tölu þeirra, er skoðuðu safnið árlega á þessum árum.
5*