Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Síða 35

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Síða 35
 35 Gripir fengnir ókeypis Keyptir gripir Sam- tals Tala gripa við árslok 1897 26 46 72 4433 1898 27 76 103 4536 1899 36 101 137 4673 1900 29 78 107 4780 1901 21 92 113 4893 1902 48 79 127 5020 1903 11 48 59 5079 1904 25 70 95 5174 1905 23 136 159 5333 1906 16 49 65 5398 1907 19 44 63 5461 281 819 1100 Má það heita furðu merkilegt, að gripatala safnsins skyldi á þessum 11 árum aukast um nákvæmlega 11 hundruð. Auk þessa gáfu þau Jón Vídalín konsúll og frú hans hið afar- merka og dýrmæta safn sitt af Islenzkum forngripum árið 1907, sbr. Árb. 1908, bls. 56—58; er það hin mesta gjöf, er safninu nokkru „ sinni hefir hlotnast. Ennfremur gáfu brœðumir Lund árið 1906 myntasöfn sin, um 2800 myntir samtals, sbr. Árb. 1907, bls. 48—9, og Árb. 1908, bls. 56. Yfirlit yfir þá muni, er safninu bættust árlega á þessum 11 ár- um birtist jafnan í Árb. Fornl.fél. (1898—1908), og mun því eigi þörf á að geta hér helztu gripanna, er við bættust. Á þessum árum var safnið sýnt svo sem fyr tvisvar á viku, 1 stund í senn, alt árið fyrstu 2 árin, en 1899—1905 var það sýnt þrisvar í viku (á mánud., miðv.d. og laugard., kl. 11—12) frá 1. mai til 30. sept., og síðustu tvö árin var það samkv. fyrirmælum í fjár- lögum alþingis 1905 sýnt fjórum sinnum á viku (1 stund í senn) á tímabilinu 15. júní til 15. sept. og skyldi seldur aðgangur að safn- inu annan hvorn dag á sama tímabili; en þar eð brátt kom í ljós, að þetta fyrirkomulag kom ekki að tilætluðum notum, var því breytt aftur, svo sem síðar skal tekið frara. — Skýrslan hér síðar sýnir i tölu þeirra, er skoðuðu safnið árlega á þessum árum. 5*

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.