Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Qupperneq 43

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Qupperneq 43
43 söfnun sinni, að þeir sjái svo ura, að kirkjugripir þeir, er þeir hafa safnað, gangi á einhvern hátt til Þjóðmenjasafns vors fyr eða síðar. Við skrásetningu kirkjugripanna, sera þó er ekki nær því lokið enn, hefir það komið í ljós að, til eru enn í kirkjum hér sérlega merkir og fornir gripir, ogí annan stað mjög margir all-gamlir gripir, frá 17. og 18. öld. Af þessum gripum ættu margir að ganga til Þjóðmenjasafnsins, fyrst og fremst þeir, sem ekki eru lengur til neins notaðir í kirkjunum, vegna þess að þeir eru úr sér gengnir, skemdir, þykja óviðfeldnir eða þýðingarlausir. Það er til einkis gagns að geyma slíka hluti í kirkjunum fremur en á Þjóðmenjasafninu. Ymsir af þessum hlutum eru að vísu notaðir enn, en þykja lítt hæfilegir og eru fyrir fátæktarsakir ekki lagðir niður. Víða hafa kirkjur verið lagðar niður, og víða stendur til að leggja kirkjur niður. Við það fjölgar enn ónotuðum gömlum kirkjugripum, sem eðlilegast er að varðveittir séu á safninu. Vitanlega eru margir af þessum gripum fánýtir og þeir hafa ekki allir verulega vísindalega þýðingu, en viss- ast mun og viðfeldnast að varðveita þá á safninu fremur en glata þeim. — En svo eru hinir kirkjugripirnir, elztu og merkustu grip- irnir, altarisbríkur, kaleikar klukkur o fl. frá því fyrir siðaskiftin, þessir gripir ættu flestir að ganga til Þjóðmenjasafnsins einmitt af því að þeir eru orðnir svo fágætir og eru svo dýrmætir. Kirkjur flestar hér á landi eru of ótraust hús til þess að óhætt sé að geyma í þeim dýrmæta gripi. Þær eru nær allar úr timbri og svo veik- bygðar, að þær geta brotnað og fokið í ofviðrum, og heflr það oft borið við. Brunahættu eru þær því sömuleiðis undirorpnar, og ekki síst nú eftir að alsiða er orðið að hafa ofna í þeim. Rakar eru þær og flestar. Kirkjur vorra tíma eru ekki tryggilegri til að geyma í þeim góða gripi en kirkjur fyrri alda, og vér sjáum hvernig farið hefir, ef vér lítum í hina fornu máldaga þeirra. Fyrrum voru kirkjur hér tiltölulega auðugar að góðum gripum, sem nú sjást hvergi, enginn veit hvað orðið er af eða hvernig hafl glatast. Þeir hafa ekki vernd- ast hér eins og altítt er i verulega vönduðum kirkjum erlendis, ein- mitt vegna þess að kirkjurnar hér voru jafnan svo óvönduð hús. Vér höfum ekki ráð á því að geyma dýrgripi í svo óvönduðum og ótryggilegum húsum, og þó að vér hefðum ráð á því, hefðum mikið til af kirkjulegum dýrgripum, þá væri það vissulega óskynsamlegt að fara svo með þá. — Vonandi er nú tekið fyrir þá hættu, sem góðir og gamlir kirkjugripir voru í fyrir nokkrum árum, að þeir voru sem í hershöndum, erlendir og innlendir menn voru að tæla umsjónar- menn þeirra til að láta þá úr kirkjunum í einstakra manna eigu. 6+
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.