Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Page 73
GAMLA BÆNHÚSIÐ Á NÚPSSTAÐ
77
Ekki trúi ég,. að kirkjan hafi verið lengri en nú er svo neinu nemi,
aðeins hafi ein sperra verið ónýt og ekki þótt nauðsynlegt að end-
urnýja hana.
Viðgerff kirkjunnar.
Viðgerð kirkjunnar hófst í maí 1958. Þá var þakið tekið af hús-
inu, allar þiljur og þverþil tekin úr því. Þá voru veggir hlaðnir upp,
þar sem þeir voru orðnir lasnir. Grindin var rétt og hækkuð í tótt-
inni svo sem unnt var og fjórum stöfum og tveimur sperrum bætt
í framkirkjuna til styrktar. Smíðað var nýtt gaflþil að austan með
glugga og vindskeiðum. Þak framkirkju var hellulagt á langbönd
svo sem áður var, en yfir skarsúðina í kór var lagt bárujárn. Smið-
ur var Sigurjón Magnússon í Hvammi undir Eyjafjöllum, en hleðslu-
maður Hannes bóndi á Núpsstað.
Um haustið komum við Kristján Eldjárn þjóðminjavörður að
Núpsstað og athuguðum húsið. Kom okkur saman um að reyna að
fá því nokkru eldri, kirkjulegan svip án þess þó að breyta því neitt
að ráði með nýsmíði. Því miður þekktum við þá ekki fyrri lýsingar
kirkjunnar, þær sem raktar hafa verið hér að framan, en trúlegt
er að ef við hefðum þekkt þær, hefði það að einhverju leyti breytt
viðgerð kirkjunnar.
Næsta vor hófst viðgerðin 20. júní. Þá var sett nýtt fjalagólf í
kórinn, þiljur settar á sinn stað aftur í framkirkju og einnig í kór,
en þar þurfti að bæta í spjöldum og listum. Voru einkum notaðar
til þess fjalir úr gamla milliþilinu, og eru nú öll spjöld í kirkjunni
úr gömlum viði, en listar í austurþili eru nýir, bæði lóðréttir og
einnig láréttur listi undir glugga, er þar var ekki áður, en var
settur nú til þess að spjöldin yrðu ekki of stutt. Þilin í þrí-
hyrnum yfir glugga og bita á milli kórs og kirkju eru gömul. Smíð-
aður var nýr umbúnaður um kórdyr og hálfþil með syllum báðum
megin kórdyra svo og pílárar frá þeim syllum upp að bita, gerðir
með hliðsjón af gömlum pílárum á Þjóðminjasafni. Settir voru
bekkir langsum með báðum veggjum í framkirkju, þiljaðir að fram-
an fyrir neðan sæti (hálffóðraðir?), til þess að hylja bilið á milli
þilja og gólfs. Loks var lagt hellugólf í framkirkjuna. Báðir stafnar
hússins voru bikaðir með koltjöru, en hurð, gluggaumbúnaður og
vindskeiðar málaðar hvítar. Sigurjón frá Hvammi var smiður nú
sem fyrr og Hannes bóndi Jónsson vann við hellulögnina, en ég var
þeim til aðstoðar.