Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1987, Side 123
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1987
143
í hinni nefndinni eru Bryndís Sverrisdóttir safnkennari, Elsa E. Guð-
jónsson, Guðmundur Ólafsson og Lilja Árnadóttir deildarstjórar og
Kristín H. Sigurðardóttir forvörður, en nefndin fjallaði einkum um
fastasýningar í framtíðinni svo og aðrar sýningar. Ákvað hún meðal
annars að gangast fyrir sýningu um Skálholt í tengslum við útkomu
fyrra bindis ritverksins um fornleifarannsóknirnar í Skálholti, sem
koma skyldi út á árinu, en varð þó að fresta franr á árið 1988.
Pessi nefnd fékk nokkra aukafjárveitingu og gátu nefndarmenn þar af
leiðandi farið í ferðir til að skoða söfn og aðbúnað þeirra. Kristín H.
Sigurðardóttir fór til Þýzkalands í maí og Bryndís Sverrisdóttir og Lilja
Árnadóttir ásamt Hjörleifi Stefánssyni til Danmerkur L—9. okt. til að
kynnast nýskipan Þjóðsafnsins í Kaupmannahöfn, sem nú er unnið að.
Undirbúnar voru viðgerðir safnhússins, sem skyldu hafnar í upphafi
ársins 1988. Á árinu var jafnframt keypt 630 fernr. geymsluhúsnæði að
Dugguvogi 12, þar sem áformað er að geyma ýmsa stóra hluti, véltæki,
forna bíla, dráttarvélar og annað, sem stórt pláss þarf undir, svo og
marga safngripi, sem flytja verður úr safnhúsinu vegna þrengsla og
vegna viðgerðanna á húsinu. Var þetta mikil bót í bili og var nú hægt
að tæma leiguhúsnæði að Tangarhöfða 6 og jafnframt flytja margt úr
lélegri geynrslu í útihúsi á Bessastöðum.
Ferðir og fundir safmnanna
Getið verður helztu ferða deildarstjóra og starfsmanna í frásögn af
viðkomandi dcild, en um aðrar ferðir er þetta helzt að segja:
Þjóðminjavörður sótti fund í Maihaugen í Lillehammer í Noregi unr
söfnun samtíðarminja 10.—12. nóvember. í framhaldi af honum síðan
fund í Kaupmannahöfn um norrænt samstarf á sviði menningarmála
12.—13. nóvember. Þá sótti hann fund á vegum Evrópuráðsins í Stras-
bourg 11.-13. maí og aftur 9.-10. desember um vernd menningarminja.
Þjóðminjavörður sótti fund í Útsteinsklaustri í Noregi 6. og 7. maí
til undirbúnings fundar í Stokkhólmi á næsta ári um verndun forn-
minja.
Þá voru farnar nrargs konar ferðir til könnunar og eftirlits innanlands
og má nefna könnunarferð þjóðminjavarðar, Guðmundar Ólafssonar og
Þóru Kristjánsdóttur ásamt Þórði Tómasyni að Gömlu-Pulu, Vakurs-
stöðum og Akbrautarholti í Holtum 8. nóvember, en á þessum stöðum
eru merkilegar og friðlýstar fornrústir. í Akbrautarholti er blásin
kirkjurúst ásamt kirkjugarði og bæjarrústum, en ekkert er vitað um
byggð þarna, og hefur hún örugglega lagzt snemma af, líklegast fyrir