Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Blaðsíða 8
56
urunum, og í þessum grun áttu ofsóknirnar sina fyrstu
rót. Nú stóð svo á, að á Rabbi Eliezer hlaut róm-
verskur landshöfðingi sjerstaklega að hafa grunsamt
auga, ef hann tæki kristni, því að hann var tengdason-
ur liins borna ríkiserfingja Rabban Shim’on ben Ga-
maliel, sem drepinn hafði verið nokkru fyrri en þessi
saga gjörðist, og systurmaður hans var konungsefnið,
er þá lifði; svo að Eliezer var nákominn konungsætt
Gyðinga, og gat því svo farið, þegar land var nýunn-
ið og þjóðin lítt holl keisaranum, að Eliezer yrði keis-
ara lítt trúr, ef hann gengi allsherjar konungi kristinn-
ar kirkju á hönd. — þ>essi kafli úr ritgjörð Lowes
hefir vakið mikla eptirtekt um allan menntaðan heim.
Enda er talið, að nú sjeu gildrök færð að þvi, að guð-
spjöll kristinnar kirkju hafi verið færð í letur miklu fyr
en nokkurn hefir áður grunað. En ekki er það sízt
eptirtektavert í því máli, að Gyðingur skyldi verða til
þess að leiða kristinn mann til sannleikans í þessu efni,
því mjer er það sjálfum kunnugt, að það var prófessor
Schiller-Szinessy, er fyrst vakti athygli Lowes á málinu,
því að prófessorinn hafði sjálfur rakið það út í æsar
fyrir mörgum árum. Sjálfur er prófessor Szinessy svo
gagnlærður í nýja testamentinu, að fáum kristnum er
sú bók kunnugri. En gamla testamentið kann hann
allt utan að.
Eiríkur Magmísson.