Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Blaðsíða 79
127
ingja, aðkoma til sín og njóta fullsælu með sjeriUtah,
þar sem allt væri miklu betra en út á íslandi; munu
þeir að líkindum hafa hugsað, að fortölur sínar mundu
hvað bezt hrífa, er þeir frjettu hjeðan almenn bágindi
sökum langvinns fiskileysis. þ’annig undirbjuggu þeir
kænlega kunningja sína til að aðhyllast Mormónaboð-
skap þann, er þeir Loptur Jónsson og Magnús Bjarna-
son, sem áður eru nefndir, voru sendir vestan um haf,
til að flytja mönnum hjer árið 1873. J>ess má geta,
að um sömu mundir hafði norðan úr landi þotið hing-
að sá andi, að fara til Brasilíu, og voru einkum nokkr-
ir hælislitlir ungir menn, er dreymdi um einhverja ó-
viðjafnanlega sælu undir hinni suðrænu sól, sem og
einnig nokkrir meðal þeirra, er ætla mátti, að væru
eins ráðnir, og þeir voru rosknir, komnir á fremsta
hlunn að fara þangað. En þá komu hinir mormónsku
trúarboðar, og vildu telja mönnum trú um, að miklu
betra væri að vera i Utah, þar drypi svo að segja hun-
ang af hveru strái. J>etta var nóg til að snúa Brasi-
líuförum í aðra átt, en þetta var einnig vatn á mylnu
trúarboðanna, er höfðu með sjer fjölda af mormónsk-
um smábæklingum í mörgum exemplörum, er þeir út-
býttu hverjum sem hafa vildi, hvort heldur til að svala
forvitni sinni, eða komast niður í mormónskum fræðum.
f>eir Loptur og Magnús gengu í kyrrþey milli bæja, og
vöndu komur sínar einkum á þau heimili, er þeir hugðu
móttækilegust fyrir kenningu sína, og fór svo, að enda
þótt prestur og helztu menn á eyjunum leituðust við
að ónýta trúarboðunartilraunir þeirra, gjörðust nokkr-
ir Mormónar, og það einkum af þeim flokki, er þegar
áður var fastráðinn til Brasilíuferðar. Svo sem forstjór-
ar flokksins voru settir Einar nokkur Jónsson, ættaður
úr Fljótshlíð, og Einar gullsmiður Eiriksson, ættaður
úr Meðallandi, og tóku þeir að halda guðsþjónustu-
gjörð á sunnudögum, fyrst í húsum Einars Eiríkssonar,