Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 85

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.06.1879, Page 85
saka, hvort hjer finndust eigi málmategundir. Fóruþeir hjer um land það ár, en fóru út aptur á næsta sumri. Ár 1658, þá er síra jporkell hafði verið erlendis 10 ár, kom hann heim til íslands, og varð strax prestur að Görðum á Álptanesi, og var hann þar prestur meðan hann lifði. Var honum af konungi boðið, að semja náttúrusögu íslands (Historiam naturalem Islandiæ), og er að skilja, að honum þess vegna hafi verið veitt Garða- prestakall, en eigi er þess getið, að honum til þessa starfa hafi verið veitt annað fje. Af því hann til þess að geta samið náttúrusöguna þurfti að fara um landið, og fyrir þá sök að hafa aðstoðarprest, en honum þótti tekjur Garðaprestakalls til þess of litlar, var honum, eins og þá var alltítt, veitt vonarbrjef fyrir Breiðaból- stað í Fljótshlíð eða Staðastað, hvorum þeirra staða, sem fyr losnaði; var það brjef staðfest af Kristjáni kon- ungi 5., en síra Jmrkell dó áður en staðir þessir losn- uðu. Má af þessu sjá, að tekjur prestakalla voru þá hafðar til að borga með vísindaleg störf. Síra |>or- kell snjeri á íslenzku bæklingi, er eignaðurvar Thomas a Kempis „Krists eptirbreytni11 (Imitatio Christi); var bók sú fyrst prentuð á Hólum 1676. Síra jporkell giptist 1660 Margrjetu þorsteinsdótt- ur, prests að Holti undir Eyjafjöllum, Jónssonar prests í>orsteinssonar, þess, er Tyrkjar myrtu í Vestmanna- eyjum 1627, en móðir hennar var Solveig ísleifsdóttir frá Saurbæ á Kjalarnesi. Margrjet var örgerð og skörungur mikill, og virðist sonur hennar meistari Jón Vídalín hafa erft skaplyndi hennar. Börn þeirra síra J>or- kels og hennar voru: 1. þórður; hann fór utan og nam læknisfræði og málfræði. Eptir að hann kom heim til íslands var hann fyrst 2 ár heyrari og síðan skóla- meistari í Skálholti, en sleppti því embætti 1690. Hann var talinn beztur læknir hjer á landi á sinni tíð; hann dó áttræður 1742. 2. hinn nafnfrægi biskup Jón Vída-

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.