Óðinn - 01.01.1921, Side 4
4
ÓÐINN
Að loknu námi kom hann hingað til lands og
varð aðstoðarmaður á 2. skrifstofu stjórnarráðsins,
gegndi hann því starfi til ársins 1912, en þá var
hann skipaður sýslumaður í Skagafjarðarsýslu.
F*að starf ljet honum vel. Er óhætt að segja, að
hann hafi átt vel við Skagfirðinga og þeir við
hann. Var hann sístarfandi, og vita það allir, sem
hann þekkja, að hann er afkastamaður mikill;
allur var hann í slarfi sínu, en þó hafði hann
altaf tíma og gat gefið sjer tóm til þess að eiga
tal við menn og kynnast hag þeirra. Það eru ein-
staka menn þannig, að þeir eru hlaðnir störfum,
en altaf hafa þeir nægan tíma og það er sem
engin ókyrð nje umsvif sjeu í fylgd með þeim.
Gegndi hann embættinu þannig, að mikill sökn-
uður varð, er hann hvarf frá því, en það gerði
hann, er hann árið 1918 varð skrifstofustjóri í
fjármáladeild stjórnarráðsins.
Auk þessara starfa hefur hann haft þingmensku
á hendi, var hann kjörinn þingmaður Skagfirðinga
árið 1616, og hefur hann skipað sæti á löggjafar-
þingi þjóðarinnar með dugnaði og þekkingu, var
hann þar brátt störfum hlaðinn og treyst var, sem
líka mátti, hyggjuviti hans og hollum tillögum.
Voru honum falin ýms þingstörf, er alls ekki stóð
á sama um hverjum voru í hendur fengin.
Við siðustu stjórnarskifti varð Magnús fjármála-
ráðherra. Hefur það fallið í hans hlut að vera í
stjórn landsins á erfiðustu tímum, sem lengi hafa
yfir land þetta komið. Alt breytist óðfluga, það
sem stóð í gær er fallið í dag. Það er erfitt hvar
sem er í heiminum að stjórna nú á tímum, það
er erfitt í hinum stóra heimi, en einnig í hinum
smáu löndum, þar sem allir þekkjast og allir vilja
ráða og segja fyrir. Það er varla hægt að snúa
sjer við, svo að það vekji ekki eftirtekt, allar
framkvæmdir eru fljótlega dæmdar og dómstól-
arnir eru margir.
Jeg fæst ekki við stjórnmál og brestur þekkingu
á því sviði, en það veit jeg um Magnús fjármála-
ráðherra, að hann vill hið rjetta. Hann er stiltur
og gætinn og hugsar vel sitt mál. Góðan vilja
hefur hann, en einnig sterkan vilja, hann leitar
þar til hann kemsl að niðurstöðu, en þá fylgir
hann hiklaust fram máli sínu með þeirri sann-
færing, er ekki víkur frá hinu rjelta, er fundist
befur fyrir þekkingu og nána yfirvegun. Honum
er það ljóst, að vandi er á ferðum og því ástæða
til að ihuga málin vel.
Magnús er fremur dulur maður og fáskiftinn og
gefur sig ekki mikið að ókunnugum; en drengur
er hann góður og jafnframt þjettur í lund og
fylgir óhræddur fram skoðun sinni hvort sem
öðrum likar betur eða ver. Það er ekki hægt,
síst nú á tímum, að gera ráð fyrir því, að skoð-
anir mannanna fari altaf saman, og þeir sem
framarlega standa í stjórnmálum kippa sjer ekki
upp við það, þó að skoðanir þeirra sjeu ekki
ætíð og alstaðar boðnar velkomnar.
Það er yfirleitt erfitt í því hafróti sem nú er að
sjá hina rjetta mynd af mönnunum. En sagan
kveður síðar upp sinn dóm, og þá munu þeir, er
þá lifa, geta athugað betur kosti þeirra og galla.
Vjer lítum nú með lotningu til margra manna,
sem vjer ekki þektum, en sagan hefur sýnt oss
þá. Það er ekki áreiðanlegt, að þeir mættu sömu
viðurkenning, ef þeir væru hjer nú, því að þá
þyrftu þeir að vera í baráttunni, en nú eru þeir
komnir úr henni.
Það er trúa mín, að Magnús Guðmundsson
verði meðal þeirra, sem sagan dæmir vel. Hann
hefur slíkt efni í sjer. Framtíðin mun verða áfram-
hald af góðri fortíð og nútíð.
Magnús á ágætu heimilis- og hjúskaparlífi að
fagna. Kvæntur er hann frændkonu sinni Soffíu
Bogadóttur Smith, og eiga þau þrjú börn, Boga,
Björg og Þóru. Er Magnús fjármálaráðherra maður
á bes.ta starfsaldri og má enn mikils starfs af
honum vænta. Bj. J.
0
Páll Pggert Ólason.
Doctor philosophiæ Páll Eggert Ólason, cand.
jur., fæddist í Stóru-Vogum í Gullbringusýslu
sunnudaginn 3. júní 1883; voru foreldrar hans: Óli
Þorvarðsson steinsmiður og Guðrún Eyjólfsdóttir
Waage. í föðurætt er Páll kominn af stórbænda-
kyni um Þórssness- og Þverárþing, og var föður-
faðir hans Þorvarður hreppstjóri á Kalastöðum,
Ólafsson, skipasmiðs og dannebrogsmanns. En
Ólafur skipasmiður þótti vera frábær dugnaðar-
maður og atgervis á sinni tíð, bráðgáfaður og
hverjum manni hagari, manna hnittnastur í svör-
um, hagmæltur vel, en nokkuð glettinn í skáld-
skapnum. Móðurætt Páls er hin svo-nefnda Waage-
ætt, og er hún alkunn hjer syðra.
Páll fluttist mjög ungur að Meðalfelli í Kjós, og
ólst þar upp hin fyrstu ár ævi sinnar hjá Finni
bónda Einarssyni og Kristínu húsfreyju hans,