Óðinn - 01.01.1921, Page 10

Óðinn - 01.01.1921, Page 10
10 ÓÖINN Lárenz. Nú, sagan mín er varla vikugömul. — Á Suðurlandi er hvergi höfn nje vík, par æðir Atlantshafið fyrir söndurn. Par úti fyrir barðist skrautlegt skip við ofsaveður, risa-boða og brim, og hrakti’ að landi. Loks pað steytti’ á grunn, og brotnaði. — Þeir settu’ út báta tvo og mönnuðu. í svipan annar sökk; hinn komst að strönd, en klofnaði við land. Af komust tveir menn syndir eins og selir; annar var myrkur bæði á húð og hár, en svipur hins var breytilegur, bjartur, en stundum dimmur, og með sorgarsvip. Ilinn siðari var kapteinn Kavel-skipsins. Par skipið sökk fjekk sjórinn rauðan lit sem blóð. Pað hafði af víni fullan farm. Pá fjara tók, peir fundu átta kistur úr járni, par sem bátinn skipsins braut; menn hugðu, að pær geymdu ailar gull. Kapteinninn — sagt er — sótti brúðkaup sitl, viltist í hafi, höfn hann enga pekti. Hafnsögumanni hefði hann glaður greitt pyngd hans í gulli, og goldið pökk að auk. í Berghyl Gottskálk gamli vakinn var um miðja nótt af syndamóki sínu, pví Ogautan var kominn. T r i s t a n. Hver er pað? L á r e n z. Nú! Ógautan, sem átti hið týnda skip. Menn segja, að jarðhús bygt sje undir Berghyl. Par mun nú gullið geymt. T r i s t a n. En hvar cr hinn? Sá myrki á hár og hörund? Lárcnz. Ilann fór hurt, nð koma peim í skip, ef skip er til, sem leggur brátt frá landi. T r i s t a n. Er sagan sönn? L á r e n z. Já, Gotlskálk hefur sagt mjer sjálfur frá pví. Hvað hyggurðu ósatt? T r i s t a n. Atta kistur gulls á kóngur bara, biskup ef til vill. Ögautan er víst biskup, L á r e n z. gullsins glym pá mátti heyra, er einhvcr kistan kom á jörð eða gólf. T r i s t a n. Pú ærir í mjer sull, að festa ráð mitt og að eignast fje. Nú, saga pín er gull. L á r e n z. Já, segðu mjer lielst aðra sögu sem má stytta vörðinn. T r i s t a n . Hver fjandinn dvelur fólkið? — Sögukorn jeg heyrði um prest, er sat um kvöld með súl í pungu geði. Kirkjan hans var hróf, en kirkjusjóðnum klerkur hafði eitt, — og biskup sagði’ að byggja skyldi’ á ný, — óhlýðni hans gat varðað kjóli og kalli. Um kvöldið, pegar sólin hafði setst kom maður einn, sem bauðst að byggja upp spánnýja kirkju, kosta efniviðinn, að telgja’ og penta hverja helgimynd, að mála húsið, hengja klukkur upp, að prýða og skreyta prjedikunarstólinn og gera altari með guðvef klætt, en prestur gæfi kross á kirkjuburst, og festi hann upp, er fullger væri smíðin, og kirkjan búin. — »Hver er borgun pín?« spyr prestur gestinn. »Gettu hvað jeg heiti; skuldin er greidd mjer, ef pú getur rjett«. »En geti jeg rangt?« »Jeg sje hjer sveina tvo, »sem leika á palli, lát mig báða fá«. »Nei, annan smiður, aldrei læt jeg báða«. sPá fæ jeg pann sem fyrri kemur út, pá kirkjan er fullger«. — Petta samdist svo. Par reis nú kirkjan, dýrðlegt Drottins hús, á nóttum hraðast. Hræðsla prestsins óx með hverri eykt. Hann gekk um auðnir einn að geta nafnsins, heyrði pá í hól sungið við barn, er sifraði og grjet: »Senn kemur Finnur faðir pinn í Hruna með leikpilt, sem hún Loppa má við una«. Pá snjeri prestur lieim og heyrði og sá smið festa koparhring í kirkjuhurð. »Eullger er kirkjan, festu krossinn upp!« Brált gnæfði krossinn upp á kirkjuburst, og eilífðartáknið hjekk á miðri hurð, og skein sem gull. Peir gengu i kirkju tveir. Par kveikti prestur kirkjuljósin öll og leit um alt, liann hafði aldrei sjeð slíkt undrasmíði, smiðurinn stóð par hjá. — Já, loft og bogar alt var yndislegt. Stað helgimynda liúktu blakkir kubbar, sem sótug goð, — var farfinn fals og prjál? —• Pær myndir höfðu skinið skæran fyr. Pá hleypur sonur prestsins annar inn, og vafði hann pá sveininn föðurlega i faðm og kreysti sjer að hjarta. — Hreytti’ í hinn:

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.