Óðinn - 01.01.1921, Side 63

Óðinn - 01.01.1921, Side 63
ÓÐINN 63 í HEIÐARSKÓGI. Nú hækkar röðull á sólbraut sveitar og senn fær harpa par efni nóg. Og móts við vorið mín ljóðúð leitar, hún leitar fagnandi’ í Heiðarskóg. Um fold rann þorri í feldi síðum og fönnum pyriaði’ af mjallarplóg. Og villur jeg fór í þeim vetrarhríðum og viltist loks — inn í Heiðarskóg. Jeg fann par bekki í Ijósum lundi. Pó leiki á ýmsu og gráni hár, par get jeg selið á gleði fundi og guði falið öll sorgartár. Hver unaðsprá fær par óskaleiði; hver andúð hlindast og snýst í vil og skeyti öfundar, rógs og reiði par renna máttlaus í sólskinshyl. — Þó skafi rinda, í skjól sje fokið og sköílum hlaðið af vetrarsnjó, pó annarstaðar sje öllu Iokið, fer altaf vorblær um Heiðarskóg. S. h. Hring'urinn. Leikur i einum þætti. Eftir Gullorm J. Gultormsson. PERSÓNUR: Eldri sveinninn. Yngri sveinninn. Faðirinn. Móðirin. Greniskógur í óbygð — limið er þakið snjó — grein- arriar hafa hnigið undan snjópyngslunum og drúpa — grenstu trjen hafa bognað niður. Djúpur snjór er á jörð. Pelta er unr nótt, snemma vetrar. Faðirinn grúflr yfir litlum sprekakesti og margreynir að kveykja á eldspýtum — pað kviknar ekki á neinni peirra, en pað gufar upp af höndum hans og lýsir af þeim eins og maurildi. Eldri sveinninn og yngri sveinninn standa skamt frá konum. Yngri sveinninn: Mjer finst skyrtan mín vera að frjósa utan um mig. Eldri sveinninn: Pabbi er að kveykja eld. Pjer hlýnar við eldinn. Yngri sveinninn: Kuldinn er bitrastur rjett áður en eld- urinn kviknar. Mjer er ilt af kulda. Eldri sveínninn: Pjer batnar við eldinn, — Við getum þjelt fötin okkar og purkað pau á okkur meðan viö hvilum okkur. Svo getum við farið heim pegar birtir. Yngri sveinninn: Við eigum ekki víst að rata þangað sem við ætlum. Eldri sveinninn: Pað sakar ekki, ef við getum haldið eldinum lifandi. Yngri sveinninn: En við erum bjargarlausir. Eldri sveinninn: Mamma hefur brauð handa okkur þegar við komum heim. Yngri sveinninn: Já, pegar við komum heim. í hvaða átt er kofinn? Eldri sveinninn (horfir lil beggja handa - bendir til hægri): í pessari átt, finst mjer. Yngri sveinninn (bendir tit vinstri): Mjer finst petta vera suður. Eldri sveinninn (bendir tii hægri): Mjer finst petta vera suður. Yngri sveinninn: Úr kvað átt komum við? Eldri sveinninn (bendir tii vinstri): Úr pessari átt. Yngri sveinninn (bendir tii hægri): Nei. Við komum úr pess- ari átt. Eldri sveinninn: Við höfum ef til vill gengið í allar áttir og komið úr öllum áttum hingað. Faðirinn (stendur upp): Nú hef jeg reynt allar eldspýt- urnar og fleygt þeim. Pær höfðu vöknað eins og við. Yngri sveinninn: Ó! Eldri sveinninn: Við verðum að ganga okkur til hita. Faðirinn: Við mundunt fara meira afvega. Yngri sveinninn: Við erum hungraðir og uppgefnir. Eldri sveinninn: Ætli að við sjeum langt frá stignum, sem liggur heim að kofanum. Faðirinn: Við erum sjálfsagt ekki mjög langt frá honum. Yngri sveinninn: Mundum við heyra ef mamma kallaði þaðan? Faðirinn: Við mundum ekki heyra nema hún kæmi nær. Yngri sveinninn: Jeg vildi að mamma fyndi okkur. Faðirinn: Jeg vildi að guð gæfi að hún færi ekki út frá börnunum. Jeg vildi að henni hugkvæmdist ekki, að leita að okkur. Yngri sveinninn: Ef hún fyndi okkur, pá mundum við komast heim. Faðirinn: Ef hún fyndi okkur, pá — (Pað styrmir — hvín i skóginum — eitt trjeð fellur með brestum og braki — fönn hristist niður af trjánum). Eldri sveinninn: Er pessi skógur á stóru svæði? Faðirinn: Jeg veit ekki af öðru rjóðri en því sem er í kring um kofann. Yngri sveinninn: Trjen geta fallið á okkur og beinbrot- ið okkur. Faðirinn: Pað er hægt að vara sig, pau falla undan vindi. Yngri sveinninn: Hvaðan er vindurinn? Faðirinn: Hann hefur snúið sjer síðan við fórum af stað. Eldri sveinninn: Vindurinn blæs úr öllum áttum. — En ef við reyndum að rekja sporin okkar aftur til baka. Yngri sveinninn: Pað er svo langt, langt. Jeg er svo preyttur að jeg kæmist ekki til baka. Jeg kæmist heim, ef mamma fyndi okkur. Faðirinn: Vindurinn hefur hrist fönnina niður af trján- um i sporin okkar, þau eru alstaðar horfin nema hjer.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.