Óðinn - 01.01.1921, Síða 77

Óðinn - 01.01.1921, Síða 77
ÓÐINN 77 i Hvammi í Vatnsdal og kendi sonum hans, en á sumrin var hann við verslun á Hólanesi. Sum- arið 1845 siglir síra Jónas til háskólans með til- styrk föðurbróður síns Jónasar hreppstjóra á Gili, er lánaði honum 400 dali til utanfararinnar. Var það alt það fje er síra Jónas hafði bjeðan að heiman til Hafnarverunnar, nema ef hann sjálfur hefur innunnið sjer eitthvað á stúdentsárum sín- um. En sakir reglusemi sinnar og ástundunarsemi á námsárum sínum við háskólann fjekk hann slyrk úr ýmsum sjóðum háskólans, svo þetta fje dugði honum háskólaárin. Um veru hans í Höfn er mjer fátt kunnugt; námið stundaði hann með stakri ástundun og tók öll sín háskólapróf með lofi, og embæltispróf i guðfræði tók hann vorið 1850 með besta vitnisbuiði eftir að eins 5 ára nám. Þá um sumarið heldur hann til Islands og setst að í Reykjavík sem tímakennari við latínu- skólann, og nokkru siðar var hann skipaður fastur kennari við sama skóla. Árið 1851 sækir síra Jónas um Kálfatjarnarprestakall, en þó und- arlegt væri, var honum eigi veitt það, heldur öðr- um manni, preslaskólakandidat, að vísu með 1. einkunn og mikilhæfum manni, síra Jakobi Guð- mundssyni; þetta var fyrsta skiftið en eigi það síðasta er háyfirvöldin sýndu síra Jónasi rang- sleitni i embæltaveitingunni. Síra Jónas er svo kennari við latínuskólann samfleytt í 22 ár, og auk þess var hann settur kennari við prestaskól- ann 1 eða 2 vetur. Um kennaraslarf og hæfileg- leika síra Jónasar til kenslu er jeg ekki fær að dæma af eigin reynslu eða þekkingu, en víst er uin það, að það starf sitt mun hann hafa rækt af allri alúð og með stakri samviskusemi eins og hann rækti öll önnur störf sín, og ekki brast hann lærdóm til kennslustarfanna, og mjög ómak- lega minnist Jón sál. Ólafsson hans sem kennara og efalaust mjög ranglátlega í endurminningum sínum. Miklu meira met jeg dóm og álit annars lærisveins síra Jónasar, er mjer hefur sagt, að hjá engum kennaranum í skóla hefði hann lært eins mikið og hjá síra Jónasi, en það mun satt vera að síra Jónas heimtaði mikið af lærisveinum sín- um, og vildi láta þá nota hverja stund til lær- dóms. Petta mun piltum hafa fallið misjafnlega, eins og oft vill verða, en yfirleitt er óhætt að segja að síra Jónas var góður kennari engu síður en aðrir samkennarar hans, er allir voru merk- ismenn og yfir höfuð góðir kennarar, og margir ágætir. Fyrstu árin sem að síra Jónas var í Reykjavfk var hann ókvæntur og bjó með Ingi- björgu systur sinni. Keypti hann þá hús við Austurstræti þar sem nú er hús Ólafs sál. Sveins- sonar gullsmiðs, en 29. sept. 1865 kvænlist hann Elinborgu Kristjánsdóttur frá Skarði á Skarðs- strönd. Kennarastaðan hefur jafnan þótt einna verst launað starf allra opinberra starfa hjer á landi, og ekki var hún það síður í þá daga en nú á seinni árum, og munu kennararnir flestir hafa átt fullerfitt með að framfleyta fjölskyldu sinni á embættislaununum einum saman. Svo mun það og hafa verið með síra Jónas; þó hann bæði væri hagsýnn í fjármálum og mesti hófsemdarmaður í hvívelna, mun hann hafa sjeð fram á að sjer mundi verða erfitt að lifa á kennaralaununum er ómegð fjölgaði, og fór þá að hugsa um að fá sjer sæmilegt prestakall, og var það ekki vonum fram- ar, þó hann hjeldi að sjer mundi verða veitt eitt hið besta prestakali hvenær sem eitthvert slíkt kall losnaði, þar sem hann var háskóiakandidat í guðfræði með besta vitnisburði, hafði auk þess verið skólakennari yfir 20 ár og kent við presta- skóla landsins, og þar á ofau hafði alment orð á sjer fyrir gáfur og lærdóm. En sú varð þó eigi reyndin. Árið 1871 Iosnaði dómkirkjuprestsero- bæltið í Reykjavík, og sótti síra Jónas um það, og taldi bæði hann og flestir aðrir sjálfgefið að hann fengi það embætti. En hvað skeður? Síra Jónasi er ekki veitt það, heldur candidat með 2. einkunn, og er slíkt ranglæti víst einstætt í sögu embættaveitinga. En þó síra Jónas væri stöku rang- læti beittur í þessu, hugði hann þó ekki af prests- skapnum, og sótti um Hítardalsprestakall, og var veitt það 1872, og fluttist hann þangað sama ár með fjölskyldu sína og reisti þar bú. Hítardalur var á þeim tíma eitt með bestu prestaköllum, bægt og rólegt og jafnframt tekjumikið eftir því sem prestaköll þá gerðust, en þegar síra Jónas fjekk Hítardalinn var sameiningarhugsunin búin að gagntaka hugi yfirvaldanna, sem vildu sam- eina sem mest af prestaköllum, og það oft af litilli sanngirni sem kunnugt er. Síra Jónasi var því gert að skyldu, er hann fjekk brauðið, að taka sameiningu við Staðarhraun hvenær sem það prestakall losnaði, og það varð 1876. Varð hann þá að flytja frá hinu fornfræga höfuðbóli Hítar- dal að Staðarbrauni, sem er lítil jörð og kostarýr, og þar að auki þá í afarmikilli niðurníðslu. Varð hann þá jafnskjótt og hann fluttist þangað að byggja upp öll hús, bæði bæjarhús og fjenaðar á sjálfs sín kostnað, og varð honum það æði kostn- aðarsamt auk þess sem búskapur á Staðarhrauni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.