Óðinn - 01.01.1921, Page 84

Óðinn - 01.01.1921, Page 84
84 ÓÐINN Eins og fyr er getið, fjekk síra S. G. við kenslu áður en hann tók prestvígslu. Eftir að hann varð stúdent, var hann einn vetur barnakennari á ísa- firði og vann sjer þar þá vinsældir, sem lengi hjeldust. Á hann enn menjagrip góðan, sem hon- um var gefinn, er hann fór þaðan, sem vottur um þakklæti fyrir starfið. Á yngri árum hafði hann mest langað til að stunda læknisfræði, þótt ekki yrði af því, og alla tíð síðan hefur hann haft áhuga á lækningum og verið laginn við alt, sem þar að lýtur. Hafði hann oft, meðan hann var í Stykkishólmi, aðstoðað Guðmund lækni við störf hans. Þá má og geta þess, að síra S. G. hefur lengi haft mikinn áhuga á bindindismálinu og starfað fyrir það. Hann er enn ern og glaður í lund. En fyrir nokkrum árum misli hann röddina svo, að hann mátti ekki tala hærra en svo sem í liálfum hljóð- um, og af því lagði hann niður prestskapinn og hætti að gefa kost á sjer til þingmensku. Yið Vatnið. Vatnið lá spegilsljett við fætur okkar. F*ó mynduðust örlitlir gárar við fjöruborðið, pvi Vatnið er aldrei álveg kyrt, heldur en hafið. Sólin var korain upp fyrir góðri stundu, og stöfuðu Ijósgullnir geislar hennar yfir Vatnið, frá ytstu austur- hrún. Þar mynduðu peir mjóa glitbrú fyrir augum okk- ar, sem alt af breikkaði, uns hún náði yfir hálfan sjón- hring Vatnsins og endaði við Vesturströndina, sem við sátum á. Þurt, rjómalitt skýjanet, vafið í veikri, blá-mengaðri góðviðrismóðu, með gulleplalituðum kögri og ljósrauð- um röndum hjer og par, lá ytst niður við sjóndeildar- hringinn í austrinu, og sást í gegnum skýjaopin í ljós- an, blágrænan himininn, sem alt af varð dimmblárri, eftir pví sem hærra var litið upp i heiðloftið. í fjörunni, fjTrir neðan grasbalann, sem við sátum á, hafði sandurinn, sem Vatnið hafði borið upp, myndað litla tjörn úr sitrunni, sem rann niður túnið frá gos- brunninum heima við bæinn. í pessari tæru lind spegl- aðist dimmblár morgunhimininn og tindruðu júní-sól- geislarnir i straumgárunum, eins og óteljandi demantar væru greyptir í yfirborðið. Vatnið getur aldrei sýnt himininn í skuggsjá sinni eins og hann er, pví sjálft ber pað ætíð sinn eigin skol- rauða litblæ, pótt hans gæti mismunandi míkið og bland- ist oft fagurlega við fyrstu og síðustu sólarlog morguns og kvelds. Straumar peir sem í Winnipegvatn renna og mynda pað, eru margir og ólíkir. Sumir langt að komnir og liggja um margskonar jarðveg, sem peir bera menjaraf. í pað fellur Skolá og Rauðá, og er hvorug tær. En sitr- an, sem rann frá járnpípu, sem rekin hafði verið marga tugi ofan í jörðina, rjett hjá íbúðarhúsi bóndans á Okr- um, sem nú sat hjá mjer niður á bakkanum, var hrein uppsprettulind og hafði stutta leið að fara niður til Vatnsins. Hún myndaði svolítinn bláleitan straum fram í pað, par sem hún rann gegnum sandrifið úr tjörninni. En fljótlega blandaðist hún pví og hvarf með öllu — eins og dropi í hafið. »Ætli pessi litla brunnspræna pín sje sýnishorn is- lenska pjóðlífsins okkar vestra?« mælti jeg og sneri mjer að Sveini bónda. Hann var prekinn maður, í hærra mcðallagi á vöxt. Hendurnar, sem voru allmikið loðnar á bökunum, hafði útiveran litað mójarpar, og andlitið og hálsinn báru sama lit, en bjartari blæ. Dökka hárið var hæruskotið, en alskeggið næstum silfurgrátt. Augun grábláu lágu í meðallagi djúpt undir loðnum augna- brúnunum, og skein i peim gletnisbjarmi pegar vel lá á honum eins og pennan morgun. Sveinn var frændi minn, en jeg heiti Ófeigur úr Hvarfinu. Hafði jeg dvalið fáein ár vestra, í Winnipeg, og heimsótt hann einu sinni á hverju sumri. Var pað ætlun mín að dvelja eitt eða tvö ár lengur vestra og halda svo alfarinn heim aftur. Sveinn svaraði mjer ekki strax. Hann tók tóbaks- plötu og sjálfskeiðing upp úr vasa sínum og skar sjer væna tölu upp í sig, eins og ekkert lægi á, pví pegar hann átti annríkt, notaði hann tennurnar í stað hnifsins á tóbakið. Hann horfði beint heim að bænum og yfir skógarrjóðrið, sem var á að giska fjörutiu ekrur að stærð — tún, akur og matjurtagarðar. Alt í kringum pað reis laufgrænn espiskógurinn. Trjágreinarnar huld- ust af pjettu laufinu, sem myndaði óslitinn, skeifumynd- aðan laufsveig frá Vatninu til Vatnsins. En gráhvítu, renglulegu stofnarnir báru Ijósbleikan blæ í sólskininu. Íbúðarhúsið var tvílyft timburhús, stórt og vandað, en fjós og önnur útihús voru flest smá og reist að mestu úr samfeldum trjábolum. Litla, fyrsta bjálkahúsið hans stóð nokkuð fyrir sunnan okkur á Vatnsbakkanum, og var alt orðið af sjer gengið. Hvítfuglar Vatnsins, sem minna á sjófuglana heima, flugu i smáhópum fram og aftur yfir fjörunni. En uppi á fjörubakkanum sátu tvær krákur á lauflausum greinum gamallar og útlifaðrar bjarkar og krúnkuðu ekki óápekt hálfbræðrum sínum, hröfnunum. Jeg endurtók spurningu mína. »Svei mjer ef jeg skil pig almennilega«, svaraði hann mjer loks og velti tóbakstölunni í gríð og ergi uppí sjer, og horfði pannig á mig, að jeg fann að hann gaf mjer til kynna að mjer væri best að tala skýrara og meira blátt áfram við sig. Jeg vissi samt að hann skildi hvað jeg átti við, pótt hann máske ekki væri búinn að ráða pað við sig hvernig hann ætti að svara. »Nú, jeg á blátt áfram við með spurningunni, hvort íslendingar hjer i álfu muni blandast hjerlendu pjóð- inni, eins og bæjarsprænan Vatninu?« »Pað veit jeg andskotann ekki! Pjer er best að beina pessari spurningu að islensku stórfiskunum í Winnipeg. Til dæmis ritstjórunum og prófessorunum. Pá geri jeg vita pað!« Sama góðveðursgletnin skein út úr svip hans og

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.