Ársskýrsla Ræktunarfjelags Norðurlands - 01.01.1904, Page 35
39
vorið 1904. Tilbúin áburðarefni voru borin á og svarar sá
áburður til á vailardagsláttu 100 pd. Chilesaltpjetur, 300 pd.
Superfosfat 18 % og 300 pd. Kainit. Heyaflinn af dagsláttu
var:
Nöfn aíbrigðanna. Hey purt af dagsláttu. Pd.
Messdag hafrar (Svenskir) 7470
Grenáhafrar (Norskir) 7260
Kubbhafrar (Svenskir) 6870
Gullrenghafrar (Svenskir) 6390
Svalöfs Klorhafrar (Svenskir) 6240
>• Ligowahafrar (Svenskir) 5700
Campion hafrar (Svenskir) 435°
Svarthafrar (Svenskir) 3810
Þegar höfrum er sáð í þeim tilgangi að slá grasið, er
bezt að slá það, þegar það er orðið I fet á hæð, en slá
þá heldur tvisvar til.þrisvar á sumri. Með því er hægt að
fá betra og næringarmeira hey. Tilraunir voru gjörðar með
það, hve hafrarnir Ijettast mikið við þurkinn, og virðist það
vera 65 — 77 °/0 (smávaxnir minna, stórvaxnir meira).
3. Bygg.
Af því voru gjörðar tilraunir með 9 afbrigði. Þeim var
sáð sama dag og höfrunum, í samskonar jarðveg og sami
áburður borinn á.
Af byggafbrigðunum urðu fullþroska:
Svalöfs tidliga Sexradsbygg varð fullþroska 5. september.
Bygg frá Norðurbotnum Torneá varð — 10.
— — — Luleá — — 10.
Finnebygg — — 20.
Björnebygg — — 20.
Þær tegundir, sem eigi urðu fullþroska voru:
Primusbygg
Svanehalsbygg